LSX swap myndi aldrei ganga í gölulöglegum bíl hérna. Fengi aldrei TUV á það.
Auðvitað má svekkja sig endalaust á því að hafa ekki bara swappað S85 strax í bílinn, en úr því sem komið er verður það ekki gert.
Það að heddpakningin hafi farið er eiginlega eins og ég planaði buildið (þannig séð), því að ég notaði viljandi "OEM" pakningu til að hafa hana sem veika hlekkinn ef eitthvað óeðlilegt myndi gerast inni í mótornum. Nú á það eftir að koma í ljós hvað gerðist nákvæmlega, hvort að það var knock eða hvað annað sem olli þessu. Mögulega "gerðist" ekkert heldur var pakningin bara búin að fá nógu marga heat cycles. Það er náttúrulega búið að tjúna á Dyno, og svo taka helvíti mörg rönn á síðustu 6 mánuðum. Autobahn runnið er alveg textbook engine killer rönn.
Ef pakningin einfaldlega gafst upp þá kenni ég lélegum gæðum Ajusa um, þar sem að Elring pakningin sem ég setti í haustið 2010 stóð af sér blokk/hedd/stimpla þegar mótorinn sprakk Feb 2011.
Ég er í stökustu vandræðum með að ákveða framhaldið. Möguleikarnir eru nokkrir.
Enn hallast ég helst að því að nota OEM Elring pakningu, og herða hana vel niður (140nm haustið 2010). Þetta er by far ódýrasti kosturinn, og sá sem að sá Ofmetni hallast helst að. Þess má geta að Pyramid ring pakningarnar frá PPF eru byggðar á Elring pakningu.
Ég sendi póst á Andreas hjá PPF og hann stakk upp á
Copperring Gasket sem þeir selja, fjandi dýrt en örugglega þess virði. Þá er bara spurning hvort að ég sé að setja mögulega álagið yfir á eitthvað annað. Skv. mögurgum er þetta "nýjasta og besta" án þess að menn fari að fræsa úr blokkinni eða skera inn í heddið.
Svo er til eitthvað sem heitir
Cut-Ring gasket og kemur frá CES í USA. Þetta er í raun pakning þar sem að hringirnir eru með 3 raufum sem skerast inn í heddið þegar hert er niður. Það á að koma í veg fyrir að pakningin fari ef það er smá knock/head lift. Þetta er sama hugmynd og Pyramid ring dæmið, nema það er ekki fræst úr blokkinni.