bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 18:51

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 20:21 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
Sælir piltar,

Þannig er mál með vexti að ég er að skrifa ritgerð um þróun bílabransans.

Sameinginar og uppkaup risanna hafa leitt til platform sharing sameiginlegravarahluta osfr.

Sem bílaáhugamaður hefur mér fundist útþynning vörumerkjanna verið afar leiðinleg þar æ fleiri og fleiri tegundir eru að missa "karakter" sinn...

(t.d hafa menn haft orð á því hve lítill munur er orðinn á VW, AUDI og SKODA, enda mikið af sömu "components" í öllum bílunum)

Hvað BMW varðar þá hafa þeir nú blessunalega verið einna fremstir í að hlada sínu identity ásamt þeim frá Stuttgart. Samt er ég dálítið smeykur við þróunina. Ef maður horfir aftur í tímann þá var BMW að mestu að keyra á 3,5 og 7 ansi mikið af módulum bæst við á síðustu árum.

Nú síðast Ásinn sem kallaður er "Golf killer" sem á að fara í samkepnni við t.d Golf og Astra.

Vitið þið hvort hann eigi að koma alfarið í staðin fyrir Compactinn E36/5 eða verða þeir e.t.v. seldir jafnhliða í framtíðinni ???

Ég hefði áhuga á því hvað ykkur finnst um þessi málefni og ef þið eruð með einhverjar ábenginar fyrir rigerðina mína þá væri það frábært!!! 8) :D

(ég er til dæmis að leyta eftir upplýsingum um hvað vörulínur bíltegundanna hafa vaxið mikið á undanförnum misserum)

kveðja
-m


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 21:57 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ásinn er í raun alveg í takt við hefðina hjá BMW, þristurinn hefur náttúrulega vaxið all verulega, það er því alveg þörf á litlum en rúmgóðum bíl hjá BMW aftur.

Ég hef engar áhyggjur af BMW, örlitlar áhyggjur af stefnunni hjá Porsche. Skítsama um Audi, VW og Skoda en þeir hafa t.d. samt staðið sig MJÖG vel með Lamborghini.

Allt í allt er þetta felst í góðum málum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 22:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Í fyrsta lagi er kominn nýr compact, E46 compact,

Hvort að ásinn og compactinn verða seldir hlið við hlið á eftir að koma í ljós, en það er líka ljóst að BMW er ekki alvitir þegar kemur að því að setja ný módel á markaðinn , þar sem að X5 og X3 eru svo líkir í verði að það einfaldlega meikar ekkert sense að selja X3 svona dýrt,

Þannig að það gæti verið verðlagningin ein sem gæti riðið öðrum hvorum bílnum af veginum, ( Compact eða ásnum þá )

Fyrir mitt leiti þá mun 1 Series eiga það eitt að vera RWD á meðan keppinautar eru framhjóladrifinir, og mun það vera bilið sem hinir geta aldrei brúað,,
það verður ekki hægt að smíða sama driving pleasure í framhjóladrifinn bíl og er í afturhjóladrifinn bíl, þess vegna býst ég við
að ásinn með sama vélarstærð og hinir,
muni koma betur út í akstur ánægju prófunum, og mun hann alltaf hafa það edge á undan hinum,
Ekki gleyma því að þótt að BMW mótor sé með sama rúmtak og aðrir þá eru þeir gæddir Valvetronic sem gerir þá yfirburða á öllum sviðum,
Enda hefur BMW unnið mörg mörg mörg verðlaun síðustu ár fyrir sínar vélar og þykja bestu vélaframleiðandi á Evrópu meginlandinu,

Ég hef heyrt að M útgáfan verði túrbó og má það vel vera, en þar sem að vélina á að vera 2lítra og 240hp þá er það ekki mikið mál að kreysta vélina þannig að hún sé það án túrbo, Valvetronic getur það fyrir BMW, en þar sem að valvetronic getur ekki operatað á því snúningsvigi ennþá sem þarf til að gera 120hö/líter vél ennþá, þá mun það ekki gerast í bráð
en mun,, það er það sem forstjóri M deildarinnar sagði um hvort að Valvetronic færi að koma í M bílum bráðum, þegar það gerist þá er lítið sem aðrir bíla og vélarframleiðendur geta gert til að smíða kraftmikla snarpa bíla sem eiga að geta challengað BMW M bílum, því að M vél með Valvetronic er eins og að hún sé með kompressor því að hún er með svo stórt powerband og risa top end, sparneytinn og hvaðeina sem hægt er að dreyma um í dag

Samt aftur on topic ;)

Þróun bílabransans eins og hann er í dag er allt um sparnað og hagræðingu því að þetta eru peninga vélar sem fjárfestar vilja fá vel tilbaka fyrir sína peninga,

Það er ömurlegt að eiga 3 fyrirtæki sem eru í beinni samkeppni við hvort annað og eru stundum að keppa einungis við hvort annað, t.d Golf og A3,
Passat og A4 og Octavia og svo framvegis,
Enn það sem að sameinar alla bíla sem eru minni en A6 (t,d)
frá Audi Group er að þeir eru allir með sama undirvagn og alveg eins fjöðrunarkerfi og sömu vélar að öllu leiti ( nema ventlalokið ) þetta er það eina sem hægt er að gera til að ná þeim hagnaði sem fjárfestar krefjast , þ.e þeir eru í raun bara að framleiða nokkra bíla með mismunandi útliti og innréttingum, svo skipta þeir þessu niður eftir staðalbúnaði,,
Svo er pælinginn hjá Audi group,,

Toyota : Situr sátt þar sem þeir sitja, einn vinsælasti bílaframleiðandi í heimi, merkilegt við Toyota er að þeir hafa meiri hagnað af fasteigna viðskiptum heldur en bifreiðasölu,, og ekki eru þeir að tapa þar,
Styrkur Toyota er í stuttum orðum , einfaldleiki og gæði sameinað
"Toyota Tákn um Gæði" Ég meina þeir segja það sjálfir bara

MMC : Hérna er annað merkilegur bílaframleiðandi,, MMC er svo allt annað en bara bílaframleiðandi, þeir eru einfaldlega eitt stórt rafmagns company, þeir smíða allt frá strokleðrum til Raforkuvera, og allt þar á milli ,
t,d Sjá þeir fyrir flestum hinum japönsku bílaframleiðendum rafmagns íhlutum og þar til gerðum mótorum og græjum, t,d er MMC ECU í Honda :)
Nema Toyota samt, MMC á aldrei eftir að fara neitt,
Enda fínt Videotæki sem mamma á ;)

Bandaríkinn : Það sem er að gerast í bandaríkjunum er að þar eru framleiðendur að leita eftir "edge" til að viðhalda markaðshlutdeild sinni locally, t,d með því að gera einn og einn project bíl sem er notaður til að auglýsa sjálfan sig, mikið af því hjá Chrysler,
Það sem þeir eru að gera er að smíða bíla sem henta fyrir Bandaríkinn, bílarnir þeirra flestra henta lítið annarstaðar í heiminum, vegna bæði varahluta framboðs og hæfðra bifvéla virkja á þessa bíla,
einnig er þynd og eyðsla ekki að gera nein kraftaverk hjá þeim,

Eina sem er gott að gerast hjá kananum er Dodge Neon SR-T, 240hp með túrbo og 2lítra,, ekki einu sinni mikið boost og því geturru fengið 280hp bíl með 3ára ábyrgð í umboðinu og borgar ekki einu sinni mikið í viðbót, þetta er nýji street racing bíllinn sem á að fá unga bíla kaupendur til að velja amerískt eftir að hafa átt Dodge Neon SR-T ( þ.e þeir eru að selja þá ódýrt og eru að reyna að kaupa loyalty í staðinn )

Það eru margir góðir hlutir að gerast í bíla bransanum og er það nýtt hestafla stríð evrópu sem kallar á nýja tækni og auknarri framþróunn sem er að gera mikið gott,

Svo er það líka ýmislegt sniðugt sem lítur ekki mikið dagsins ljós t,d þetta hérna sem ég og gunni erum búnir að vera slefa yfir síðan við sáum þetta,, einn merkasta uppfining varðandi standard 4stroke vélar nokkurn tíma
http://www.coatesengine.com/

Þetta hérna er málið þetta er eitt fokkin hedd sem er veikleiki 4stroke véla



"Remedy
The Coates Spherical Rotary Valve Engine is the most advanced in the world, with the most positive valving system ever built. The breathing capabilities of the system are almost double that of a poppet valve. For instance: a static test of a five-litre poppet valve engine on an airflow machine produced a reading of 133 cubic feet per minute (CFM) with valve fully opened. The five-litre Coates Spherical Rotary Valve Engine on the same machine, however, produced a reading of 319 CFMs fully opened; a colossal advantage in airflow comparison. A five-litre poppet vavle engine tested on a dynomometer under the same loads and conditions at 5500 produced 480 BHP and 454 foot pounds of torque. The maximum RPMs on the poppet valve engine were 5700 RPMs; the Spherical Rotary Valve Engine in comparison reached 14,850 RPM's, The Coates Spherical Rotary Valve comprises two spherical rotary valves assembled on two separate shafts - one for inlet and one for exhaust. They rotate on ceramic carbon bearing with no oil lubrication, the spheres do not make contact with any part of the housing. The seals are a floating type and are also made of a ceramic material. They have two piston rings and are floating in a small cylinder-type chamber, they are activated by the compression and the combustion strokes of the engine which allows 100 percent sealing effectiveness, when compressed.

Because the valves rotate away from the combustion chamber and are vented and charged on the opposite side of each sphere, this creates a lower combustion chamber temperature, allowing for higher compression ratios to be used thus creating an extremely efficient engine. Some of the Coates Spherical Rotary Combustion Engines are at 12 to 1, 13 to 1, 14 to 1 and 15 to 1 compression ratios depending on the application."

Við þurfum bara að fara sjá svona í BMW 760i Hydrogen bíl, með túrbo og það er öll mál leyst ;)

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 22:42 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
Takk fyrir svarið Bebecar,

Ég er svo sem sammála þér með BMW stefnuna, en svona miðað við hvað er að gerast í bandaríkjunum þá eru menn að tala um að nú snúist mest allt orðið um Branding, þ.e.a.s selja ímyndina frekar en eiginleikana.

Svo er líka svoldið erfitt að bera saman bílategund eins og Lamborghini við BMW eða Audi (í samhengi við verð og sölutölur)

Engu að síður er ég á þeirri skoðun að bílafyrirtækin eigi að skoða meira útvíkkunina með nýjum vörumerkjum. Toyota/Lexus Honda/Acura í staðin fyrir að eiga hættu á að skaða ímyndina...(sbr. Benz sem hefur átt mikið undir hökk að sækja)

en veistu eitthvað um þetta með Compactinn og framtíðaráform ?

kveðja
-m


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 22:56 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
Góður Stefán.... :D (var ekki búinn að sjá svarið frá þér þegar ég spurði bebecar um compactinn)

Ég er svo sem sammála þér (sbr. skrif þín um audi), skrifa á einum stað ritgerðina:

Flestir bílaframleiðendur leggja áherslu á að auka söluna strax. Fleiri bíltegundir, fleiri gerðir, mismunandi útfærslur, mismunandi verðlagningar og aðrar hvatningar eru notaðar til þess að selja sem mest og mjólka þannig vörumerkið frekar en að byggja þau upp.
Maður veltir því fyrir sér afhverju forrystumenn Chervolet sem og aðrir bílaframleiðendur eru að þynna út vörumerki sín eins mikið og raun ber vitni. Líklega vegur þyngst sú pressa sem hvílir á stjórnendunum um að snúa við rekstrinum strax. Samkeppnin á markaðnum er gríðarlega hörð og taka hlutabréf fyrirtækjana dýfur í kauphöllunum við hverja afkomuviðvörunina á fætur annari.
Af þessum ástæðum virðast allar “góðar fréttir” og jákvæðar afkomuspár vega þyngra en langtímasjónarmið, má vera einfaldlega vegna þess að bílaframleiðendur eru að róa lífróður sinn

Svo er líka forvitnilegt að sjá hvernig SSR Chervoletin kemur út í sölu, mér finnst bara miðað við "product line" hjá Chervolet þeir vera búnir að missa mikið af því sem heitir Fókus og Karakter.
Þeir selja, stór, litla, dýra og ódýra :shock:
http://www.chevrolet.com/


Varðandi það sem ég sagði áðan með Toyota/Lexus krefst samt sem áður miðstýrðar stjórnunar, GM passaði ekki upp á það og tegundirnar þeirra fóru í harða samkeppni sem hefur leitt til harðs verðstríðs (það sem spaðarnir segja það versta óvin bransans)

kveðja
-m


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:04 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
Mig líka eitthvað gott dæmi um svokallað "Upward stretch"


t.d. Skoda í lúxus, sbr. Skoda Superb.

Ef ykkur dettur eitthvað annað gott dæmi í hug :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:06 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Targa wrote:
Mig líka eitthvað gott dæmi um svokallað "Upward stretch"


t.d. Skoda í lúxus, sbr. Skoda Superb.

Ef ykkur dettur eitthvað annað gott dæmi í hug :wink:

Færð ekki betra dæmi en VW PHAETON :shock:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Framhjóladrfinir bílar sem eiga að vera sportlegir eiginleikum gæddir

Það er upward stretch if there ever was one ;)

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:20 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
bebecar wrote:
Færð ekki betra dæmi en VW PHAETON :shock:


Auðvitað...! :D

VW dissaðir mikið undanfarið fyrir að hafa fallið frá sinni upprunalegu "bíll almúgans" ásamt hinum 6 stykkorðunum sem þeir nota til þess að lýsa VW ímyndinni (man þau ekki alveg, en skal koma með þau síðar)
eins og skoda sé að taka við hlutverki VW...nema náttúrulega lúxusbíllinn...ég meina hvaða almúgamaður hefur munað á borð við innbyggt kælibox í hanskahólfinu :wink:
http://www.skoda.is/tegundir/superb/honnun/thaegindi.asp

Voru eitthvað að tala um að það hafi verið mistök að kynna ekki Phaetonin á undan Toureq, eða öfugt...allavega kenna því að hluta til um slæmt gengi P :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Svo er mjög vinsælt að koma með svokallaða halo bíla til að græða nýja markaði og gott fæmi um það er Chrysler Crossfire í Evrópu. Bíll sem fær litla eftirtekt í Bandaríkjunum en er að vekja athygli á Chrysler í Evrópu sem gæti svo seinna skilað sér í bættri sölu á öðrum bílum Chrysler.

Einnig er að koma ný Lancia Fulvia sem ég og mal3 ræddum um á http://www.biladella.net/, það er bíll sem gæti orðið halo bíll fyrir Lancia og grætt markað.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 10. Apr 2004 23:50 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 07. Apr 2004 16:00
Posts: 11
Mikið til í þessu hjá þér með Crossfire bílinn.

Hann er líka annað dæmi um hvað bílarnir eru orðnir líkir, hefur verið nefndur "Mercedes í dulargerfi" 39% af bílnum, þar á meðal vélin, skiptingin ásamt tölvu- og stýrikerfi koma úr smiðju Mercedes Benz og svo er boddýið líka sláandi líkt SLK og CL línunum frá Benz, því miður

Þar fór "good old american muscle" tilvitnun úr 2Fast fyrir lítið hjá Crysler :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 11. Apr 2004 00:08 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Stefan325i wrote:
Framhjóladrfinir bílar sem eiga að vera sportlegir eiginleikum gæddir

Það er upward stretch if there ever was one ;)


Þetta er náttúrulega tóm þvæla -

Nýbúið að velja bíl síðustu 10 ára hjá EVO og það var Clio Williams, framhjóladrifinn.

Ekki gleyma, Peugeot 1.9 Gti, Integra Type R, Mini Cooper S, Clio 172 og hellingur af fleiri góðum bílum.

Hinsvegar er það alveg rétt að það er auðveldara að ná eftirsóknarverðum eiginleikum með afturhjóladrifi. OG ég ber mikla virðingu fyrir BMW að halda sig við afturhjóladrifið.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 11. Apr 2004 13:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
góðir kanski en hvar væru þessir bílað ef þeir væru RWD ?????????????

Spáðu í því.

ef clíóinn væri RWD þá væri Sveinbjörn mögulega enn eigandi af sínum.

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 11. Apr 2004 14:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Stefan325i wrote:
góðir kanski en hvar væru þessir bílað ef þeir væru RWD ?????????????

Spáðu í því.

ef clíóinn væri RWD þá væri Sveinbjörn mögulega enn eigandi af sínum.


Nei, vitlaus framleiðandi :wink:

Vel upp settir framdrifsbílar eru mjög skemmtilegir og bjóða upp á mjög grófan akstur en það er bara auðveldara að skemmta sér á RWD. Tek RWD fram yfir FWD any day en það er samt til slatti af skemmtilegum FWD bílum

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 11. Apr 2004 14:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
ég trúi ekki á frammhjóladrif 8)

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 10 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group