við erum svo svakalega ósammála að ég verð að kommenta

saemi wrote:
Erum við kláru Íslendingarnir svona sniðugir, að okkar glæsti ferill og menning er miklu betri heldur en þessir aular í Evrópu sem vita ekkert hvað þeir eru að gera. Þeir búandi í torfkofum fyrir 100 árum, þegar við byggðum hallir og menning og listir blómstruðu í svartnættinu á Íslandi.
Er betra að vera einangruð af því að við eigum svo frábæra stjórnendur til að leiða okkur? Fólk sem er hámenntað í sínum fræðum. Ekki höfum við Flugfreyju sem er ekki einu sinni með stúdentspróf til að stýra för þjóðarskútunnar. Hvað þá jarðfræðing sem sér um fjármál landsins okkar. Eða hvað?
Eða segjum við bara, já... en þessi stjórn fer nú að hætta.
Er þessi stjórn ekki einmitt endurnýjunin á fólki sem fólk vildi og við fengum? Segjum við þá bara núna, já, það þarf að endurnýja fólkið í brúnni, það tekur miklu betri stjórn við...

Hver verður þar fremstur í för? Verður það einhver sem er algjörlega með puttana á þessu og snýr skarplega til hægri, til þess að passa upp á að við almúginn fáum aftur í vasann það sem er búið að vera að taka frá okkur. Eða verður hann kannski handbendill kvótakalla, atvinnulífsins, lífeyrissjóða... Það gæti þó ekki gerst eða hvað?
Er það betra því við eigum svo gott og þróað hagkerfi sem byggt var upp af íslenskum sérfræðingum í bankamálum og viðskiptum? Menn sem eru miklu klárari en allir reyndustu sérfræðingar heimsins. Menn sem geta gert hluti sem enginn annar gat gert. Þetta gátu íslensku snillingarnir.... eða hvað?
Kommon, við Íslendingar erum bara ekki svona rosalega miklu betri en allt annað fólk. Það myndi vera þvílík lyftistöng fyrir okkur að vera hluti af EU eins og staðan er nú.
Lykilatriðið hér er að við erum að ræða breytingu frá eigin stjór, yfir í stjórn annarra yfir okkur. Þú snýrð þessu við. Þarf ekki að rökstyðja að kerfið sem við erum að fara inn í sé
betra en það sem við höfum í dag? Myndi einmitt vilja snúa öllu við sem þú sagðir, því það er rétt á þann háttinn. Er þetta allt svona miklu betra í EU að það sé þessi virði að breyta? Þeir sem hafa búið erlendis eru því yfirleitt ósammála.
saemi wrote:
Hvað haldið þið að það séu mörg fyrirtæki sem myndu slást um að komast til Íslands til að nýta ódýra orku til framleiðslu, ef hér væri gjaldmiðill sem væri gjaldgengur á alþjóðamarkaði og stöðugt skattkerfi sem virkar. Það væru komnir ófáir þúsund fermetrar af gróðurhúsum að rækta tómata innan nokkurra ára til Keflavíkur fyrir hann Árna Sigfússon og atvinnuleysið þar.
Bíddu ég hélt að það væri landráð að leyfa einhverjum öðrum en ríkinu að fjárfesta í orku? Að minnsta kosti virðist umræðan vera á þann veg í dag að ríkið sé eini aðilinn sem kann að fara "rétt" með þessa auðlind, enda með frábært track-reckord

Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að leyfa útlendingum sem íslendingum að koma að nýtingu orkunnar með þeim hætti að eignarhald á auðlindinni haldist alltaf hjá ríkinu. En þetta er mjög pólitískt. Það að skipta um gjaldmiðil verður engin töfralausn í þessu frekar en öðru og myndi ég segja langt frá því að vera stóra málið varðandi erlenda fjárfestingu í geiranum, jafnvel þegar pólitíkin er tekin til hliðar.
saemi wrote:
Hvað haldið þið að það væri langt þangað til að við gætum fengið húsnæðislán án verðtryggingar á 2-3% vöxtum?
Þessari gulrót er alltaf haldið fyrir framan fólk, en hún á ekki við rök að styðjast. Hagfræðilega er það eina sem skiptir máli við fjármögnun er að undirliggjandi áhætta sé rétt metin. Fasteignabólan í heiminum fór framúr öllu valdi einmitt vegna þess að fólk á Spáni, Grikklandi ect. fékk lán á sömu kjörum og rétt var í stöðunni fyrir Þýskaland. Þetta mun breytast stórkostlega og ekkert unnið með því að halda að í þessu sé einhver free-lunch.
saemi wrote:
Það væri ömurlegt að geta farið til Þýskalands, keypt sér bíl, borgað af honum skatt þar og keyrt til Íslands. Tekið norrænu heim eftir gott frí úti og borga ekki krónu í toll heima.
Þetta verður aldrei svona. Þau lönd sem eru innan EU halda enn mörg í gríðarlega tolla. Ég
saemi wrote:
Spilling verður alltaf til. Evrópa, Ísland, skiptir ekki máli, en hún er mismikil. Ég fyrir mitt leyti held að spilling á Íslandi sé alveg á pari við spilltustu lönd í Evrópusambandinu. Þannig að það gæti þá ekki nema batnað eða hvað?
Hef svosem ekki mikla skoðun á þessu, aðra en að taka undir það sem þú segir að spillingin er allsstaðar, hægri, vinstri, heima og EU. En við erum að tala um breytingu, þarf ekki aftur að rökstyðja að kerfið í EU sé betra? Spilling hefur innan ríkisstjórna hefur gjarnan verið lýst sem einföldu línulega hlutfalli við völd, stærð, ítök, red-tape og bjúrókrasí þeirra. EU er þar poster child.
saemi wrote:
Væri ekki líka betra að hafa spillta einstaklinga í Evrópu sem koma með tilskipanir? Hvað haldið þið að þeir séu að spá í Íslandi þegar þeir eru að "grassera í spillingunni". Þeim er alveg sama um nokkrar hræður lengst úti í Atlantshafinu. Kommon, EU fer ekki að setja Ísland í einelti, við erum bara nokkrar hræður úti í Atlantshafi, þeir fara ekki að setja lög sem öll Evrópa þarf að fylgja, bara til að klekkja á Íslendingum. Það þarf bara að landa sjávarútveginum þannig að við höldum meginpartinum og aflanum sé landað hér að mestu. Þá er restin klink.
Væri það ekki betra heldur en spilltir stjórnmálamenn á Íslandi sem setja lög hægri og vinstri, í sínu eigin landi, til að umbuna sér og sínum?
Afskaplega ósammála, ef eitthvað er fasti í þessu lífi þá er það að pólitík snýst um hagsmuni sem því miður eru alltaf mismunandi eftir fulltrúum. Hagsmunir okkar verða ekki varðir innan EU, heldur einmitt eins og þú segir, við skiptum engu máli. Hagsmunir stóru þjóðanna munu alltaf ganga fyrir, enda hefur sagan sannað það nú þegar innan EU.
saemi wrote:
Ég skil ekki þennan þjóðarrembing, að vilja standa utan við allt og alla. Það myndi kannski virka ef við ættum frábæran einræðisherra sem tæki alltaf réttar ákvarðanir. En þannig er það ekki og mun aldrei verða. Hættum að róa á móti straumnum og notum frekar kraftana í að róa á fengsælustu miðin.
Að sama skapi skil ég illa þá útlendingadýrkun sem virðist aftur hlaupin í okkur. Að útlendingar geti gert allt betur en við á öllum sviðum. Í mínum huga skiptir miklu frekar málið hvert straumurinn er að taka okkur en hvort við erum að róa á móti eða með. Í tilviki EU er því miður verið að fara í kolranga átt með samþjöppun á valdi til aðila sem enginn kaus, gjaldmiðil sem gengur ekki upp hagfræðilega og hagsmunapólitík sem hyllir fyrst og fremst undir stóru ríkin. Ég vil róa á móti straumnum.
saemi wrote:
Það ætlar enginn taka af okkur sjálfstæðið, þetta snýst um að vera hluti af Evrópsku hagkerfi og menningu.
Málið snýst einmitt um framsal á sjálfstæði, enda þurfum við að breyta stjórnarskrá Íslands ef við ætlum að ganga í EU. Við getum vel verið hluti af Evrópskri menningu og hagkerfi án þess að taka upp ókosti þessara ríkja í leiðinni.
JÞS