BMW E46 á tilboði
Eins og sjá má eru nýjir BMW E46 3-línubílar á tilboði hjá B&L.
B&L wrote:
Þú gætir vel eignast BMW
BMW aðdáendur hafa ástæðu til að fagna þessa daganna því B&L hefur nú fengið sendingu af gullfallegum BMW „Þristum“ á alveg sérstökum kjörum. BMW 316i í Lifestyle útgáfu (1,8 lítra vél) fæst nú t.d. á aðeins kr. 2.990.000.-. Í bílnum er búnaður eins og hvít stefnuljós, sjálfvirk loftkæling, þokuljós, leðurklætt stýri, Scritto leðursæti, 16” BMW álfelgur, metallic lakk, króm á mælum í mælaborði, 6 loftpúðar, BMW útvarp með geislaspilara og armpúðar milli sæta. Um er að ræða allt að 14 % verðlækkun.
BMW Exclusive er geggjaður
Einnig er í boði á þessum góðu kjörum BMW 318iA í Exclusive útgáfu (2,0 lítra vél) á kr. 3.830.000.- og bætist þá við búnaður eins og STEPTRONIC sjálfskipting, aksturstölva og leðurklætt aðgerðastýri.
_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR