Þetta eru skemmtilegar pælingar og mig langar að bæta aðeins inn í þetta.
Ég þekki nú nokkra Prius eigendur og enginn þeirra hefur séð 4l/100km eyðslu, held að þetta sé nær því að vera 5-6l/100km og uppgefin combined er um 5
Miðað við 20.000km á ári eru þetta c.a. 200*5*200 = 200.000kr
Síðan ætti bensínbíl að fylgja meira viðhald en rafmagnsbíl (mun fleiri slithlutir, olískipti á mótor o.s.frv.) sem hljóta að skila sér í a.m.k. 25þús kr árlega umfram rafmagnsbíl en svo er ennþá spurningamerki við endinguna á rafgeymunum.
Samanburður við Tesla Roadster finnst mér frekar ósanngjarn, annar bíllinn er pjúra A-B bíll meðan hinn er exotic leiktæki. Held að það væri nær lagi að bera saman Prius og t.d. Nissan Leaf.
Mér sýnist Nissan Leaf kosta u.þ.b. 25% meira en Prius (miðað við USA verð) en svo er eitthvað skattafsláttarkerfi í gangi þarna sem gæti minnkað muninn.
Ef Prius kostar 5.6m nýr þá áætla ég að Nissan Leaf kosti u.þ.b. 7M eða u.þ.b. 1.4M meira. Þetta er jafnvel minna, þekki ekki tolla og skattaflokkana nógu vel.
1.4M tekur þá c.a. 7ár að borga upp miðað við að núverandi eldsneytisverð. Hins vegar má ekki gleyma að horfa á fjárfestinguna, þ.e að rafmagnsbíllinn haldi sér þokkalega í verði og muni e.t.v. verða eftisóttari kostur á markaði notaðra bíla ef eldsneytisverð heldur áfram að hækka. Þá má jafnvel fá þessar 1.4 milljónir aftur og þá verður reiknisdæmið fljótt að vera rafmagnsbílnum í hag.
Ég held að rafmagnsbílar hljóti að vera framtíðin fyrir Íslendinga, þarna erum við að nota orku sem er unnin innanlands svo sparnaður í gjaldeyri verður gríðarlegur og útblásturinn enginn. Svo á maður einhverja græju með gamla góða sprengjuhreyflinum í skúrnum fyrir sunnudagsbíltúrana og adrenalín fixið
