Úfff hvað þetta gengur hægt.
Þau í B&L eiga eitthvað erfitt með að finna tíma fyrir þetta. Ég var erlendis sjálfur fram til síðustu mánaðarmóta, en er búinn að vera í sambandi við kynningarstjóra B&L síðan og til stóð að halda fund varðandi kortin. Mér skilist að það væri í góðum gír og þau vildu bara svona samræma útlitið.
Ég mætti svo á fund til þeirra þriðjudaginn 04.03 en þá var viðkomandi ekki við til að taka á móti mér
Eftir afsakanir og lofun um yfirbót er ég ennþá að bíða eftir að það komist á nýr fundartími.
Vonandi fer þetta eitthvað að ganga, ég er alveg jafn spenntur og þið. Ef ekki spenntari ...
Sæmi félagi