Kæru meðlimir,
Nú hafa greiðsluseðlar vegna ársins 2010 verið sendir út á alla sem voru meðlimir á síðasta ári.
Þeir sem hafa nú þegar greitt árgjaldið með millifærslu en fá samt greiðsluseðil
henda bara seðlinum og eyða útúr heimabankanum. Þeir sem hafa skráð sig
og vildu fá greiðsluseðil en fengu ekki hafa samband við mig á iar@bmwkraftur.is
og ég redda því um hæl.
Þið athugið að því fyrr sem seðillinn er greiddur því fyrr færð þú kortið.
Þeir sem fengu greiðsluseðil en ætla sér ekki að greiða árgjaldið þeir henda
bara seðlinum og eyða honum útúr heimabankanum.
Þið athugið að það er hægt að greiða seðilinn strax í heimabankanum, þrátt
fyrir að hann hafi ekki borist inn um lúguna. Við hvetjum alla þá sem nota
heimabankann að greiða seðilinn sem fyrst, því þá kemur kortið fyrr!
Kær kveðja,
BMWKraftur






