Svo maður sé ekki að tala um þetta í öðrum póstum og off topic-a til dauðans þá ákvað ég að búa til bara þráð um þetta
Hvað finnst ykkur vera flottustu felgurnar sem passa á compact ? Af hverju ? Endilega póstið eins mikið af myndum og hægt er líka ef þið eigið
Aðallega í huga er ég með AC Schnitzer felgur í huga, link af einum rauða einmitt með slíkum felgum á er að finna
hérna.
Annað útlit með AC Schnitzer felgur sem ég fann er líka geðveikt, þessi hér:

Spurning þá um shadowline-un á bílnum með svartar felgur, efast samt um að það kæmi nærri jafn svalt og þessi alveg svartur....
Hitt sem ég var að hugsa um var Borbet A felgurnar, hef ekki getað fundið myndir af því en til eru myndir hér einhversstaðar á kraftinum af e36 á Borbet A felgum (frekar djúpar, fýla það) og fannst það alveg vera að gera sig

Ef þið eigið myndir af compact með slíku, endilega látið það hér inná ! (Ef þið eruð photoshop snillingar, endilega go nuts líka

)
Ef um meira cruiser stíl væri að ræða, held ég að M6 felgur væru best....
Ef þið ætlið að fara vera dissa compact-a eða e'ð, endilega sleppið því bara takk
