bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 10:11

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW 530D E39
PostPosted: Tue 25. Aug 2009 13:56 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Posts: 989
Location: Seoul, South-Korea
Heilir og sælir.

Ég hef augastað á BMW 530D E39 beinskiptum - hrikalega gaman að keyra þetta.

Ég hef aldrei átt diesel bíl áður - er e-ð annað og sérstakt sem maður þarf að varast varðandi þessa bíla? Hann er ekinn heldur mikið eða 204 þús. (ætlaði mér aldrei að eignast bíl yfir 200 þús), en það er alls ekki að finna í akstri.

Kv.
JKH

_________________
Jóhann Karl Hermannsson

BMW 520D F10 ´13
Kawasaki KX450f ´07
8 Ball Lowrider 20"


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Tue 25. Aug 2009 19:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Ég myndi helst horfa eftir því hvort það sé búið að skipta um turbínu og láta jafnvel umboðið eða Eðalbíla yfirfara hann.


Þetta er það sem ég veit, ég vona það gagnist þér eitthvað.


Enn það er alveg rétt hjá þér, þetta eru þrususkemmtilegir bílar, nóg afl og skemmtilegt að hafa þetta beinskipt. Eyðir líka mjög litlu. :)

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Tue 25. Aug 2009 20:45 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Tek undir með að athuga hvort búið er að skipta um eða fara eitthvað í túrbínuna - ef ekki þá kýla verðið þeim meira niður. Einnig alveg möst að hann hafi farið í Inspection I og II á réttum tíma. Ekkert að því að kaupa bíl sem er mikið ekinn en það er óþolandi mikið af BMW þarna úti sem hafa bara alls ekki fengið eðlilegt viðhald.

Þetta er líka rétti tíminn til að vera picky og sætta sig ekki við eitthvað rugl. Síðan er bara málið að fara alltaf með bíla í söluskoðun, það bara maaaargborgar sig ef maður er ekki þeim sleipari sjálfur þegar kemur að stálinu.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Tue 25. Aug 2009 22:01 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 25. Dec 2008 09:22
Posts: 584
Túrbínuskipti eru mega dýr. Túrbínan á það til að endast í 100þ. til 150þ.+. Besta leiðin til að láta hana endast er að leyfa túrbínunni alltaf að kólna eftir góða keyrslu áður en að þú drepur á. Og að skipta um olíuöndun yfir í e60 öndunina.
Minn er einmitt nýkominn í 205þúsund. Og þetta er bara algert yndi. Persónulega myndi ég frekar vilja bílinn sjálfskiptann. Togið í vélinni er svo mega skemmtilegt. Maður getur sprautast áfram án þess að láta hana snúa sig of mikið.

_________________
Toyota Rav4 '97 "Special" Seldur :D
e39 530d touring sport 2003 - ///M-(aður) - Seldur :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Tue 25. Aug 2009 22:11 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Bestu bílar heims.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Wed 26. Aug 2009 10:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Iss piss, kaupa þér 530i Skilja d-ið eftir á ljósum, vera með hljóðlátari bíl, vera kominn með heita miðstöð eftir 3 mínútur en ekki 15 mínútur, og þarft aldrei að hafa áhyggjur af túrbínu eða spíssum 8)

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW 530D E39
PostPosted: Wed 26. Aug 2009 10:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Mér finnst reyndar alveg glatað að hafa þessa bíla bsk, gerir nákvæmlega ekkert fyrir þessa vél og gerir endursölu bara erfiðari.

Annars eru þetta hörku góðir bílar ef þeir eru nýrri en 2000 (193hö), þræl vinna og nota eldsneytið almennilega. Myndi ekki láta sjá mig á bensín E39 nema 540 eða M5 eftir að hafa prófað diesel.

Skoðaðu þjónustubókina bara vel og fáðu einhvern færan til að skoða bílinn með þér, það er dýrt að kaupa köttinn í sekknum.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 40 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group