Driftkeppni laug. 18. júlí - ATH SEINKUN UM NOKKRA TÍMA!!

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Driftkeppni laug. 18. júlí - ATH SEINKUN UM NOKKRA TÍMA!!

Postby arnibjorn » Mon 13. Jul 2009 11:21

Fjórða umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 18. júlí næstkomandi.

Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.


Dagskrá

Föstudagur
19:00 Æfing fyrir keppendur

Laugardagur
14:30 Svæði opnar/ Mæting keppanda
14:30 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja /Fundur með keppendum
15:00 Upphitun hefst
16:00 Upphitun lýkur

16:15 Ræsing 1.umferð
17:15 Hlé
17:45 Ræsing 2. Umferð
18:45 Lok keppni/dómarahlé
19:00 Kærufrestur liðinn
19:30 Tilkynning úrslita
19:30 Verðlaunaafhending

Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.

Allir þeir sem geta mætt og hjálpað til við keppnishaldið eru velkomnir og beðnir um að mæta áður en upphitun hefst.




Til keppanda:

Upplýsingar um skráningu í Driftdeildina er að finna hér: http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?t=457

Upplýsingar um skráningu í keppnina er að finna hér: http://www.drift.is/keppnisskraning.php

Það gilda sömu reglur og vanalega.

Til að keyra þarf:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl (gilda endurskoðun ef ekki er sett út á öryggisatriði)
Hjálm

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Kv. Driftdeild AÍH
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Driftkeppni laugardaginn 18. júlí

Postby arnibjorn » Mon 13. Jul 2009 13:16

Ef menn hafa áhuga á að vera dómarar eða vera í staffi þá endilega senda mér PM.

Öll hjálp þegin!
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Driftkeppni laugardaginn 18. júlí

Postby gulli » Mon 13. Jul 2009 17:17

Hvar er hægt að nálgast uppl um reglur og efni sem þarf til að geta dæmt á svona driftkeppni???
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Driftkeppni laugardaginn 18. júlí

Postby Jón Ragnar » Mon 13. Jul 2009 19:19

Gulli wrote:Hvar er hægt að nálgast uppl um reglur og efni sem þarf til að geta dæmt á svona driftkeppni???



Þetta er ekkert mál, þú færð afhenda möppu með öllum upplýsingum um hvaða svæði eru dæmd ofl.
Dómarablaðið sjálft er mjög auðvelt að rýna í og gefa stig út frá hraða, angle, tengingum ofl hjá keppendum

Endilega koma og prufa að dæma :)
öll hjálp er vel þegin og dómarar fá alltaf besta view-ið

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Driftkeppni laugardaginn 18. júlí

Postby HK RACING » Mon 13. Jul 2009 23:37

:argh:
Hilmar B Þráinsson S 822-8171
HK RACING
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1382
Joined: Thu 05. Jan 2006 22:25

Re: Driftkeppni laugardaginn 18. júlí

Postby arnibjorn » Sat 18. Jul 2009 00:06

ATH ATH VIÐ ÞURFTUM AÐ SEINKA KEPPNINNI UM NOKKRA TÍMA ÚTAF FRAMKVÆMDUM Á BRAUTINNI!!

MÆTING FYRIR KEPPENDUR 14:30 OG KEPPNIN SJÁLF FYRIR 16:15.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city


Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest