
En málið er að eins og á mörgum þessum bílum eru afturgormarnir brotnir og var ég að hugsa mér að kaupa þessa lækkunargorma undir hann: http://www.linwar.com/e36_20_5000.html
Ætlaði bara að athuga hvað ykkur BMW gúrúum finnst um þetta, þetta er komið heim á 9þús meira en bara afturgormarnir kosta á partasölu (hringdi útum allt, ódýrast á 15þús stykkið)
Er þetta e-ð sem ég get skipt um sjálfur? Frekar laghentur og allar græjur ættu að vera til í skúrnum en það væri kannski betra að outsoursea þetta, er einhver hérna sem væri til í að taka það að sér að skipta um þetta fyrir einvern aukapening?
Öll hjálp vel þegin og vonandi að maður geti gert hann flottan í framtíðinni og tekið þátt í þessu BMW samfélagi hérna



