verðið á þeim bíl á sér enga stoð í raunveruleikanum hinsvegar,
ég spáði mikið í E39 bílunum meðan ég vann á bílasölu og álíka, 07 á ég 07.02 540i mtech með individual options og gjörsamlega hlaðinn búnaði.. betri E39 non M5 hef ég ekki rekist á fyrr eða síðar, ég keypti þann bíl á 2.8-2.9m og var það innflutningsverð á slíkum bíl þá. en engu síður þóttu 3m fyrir E39 bíl MJÖG mikið á þeim tíma, og það var á þeim tíma sem bílar seldust eins og heitar lummur og sudda afborganir og hár viðhaldskostnaður var engin fyrirstaða, á þeim tíma kostaði M5 3.5m+
E39 hefur hinsvegar hrapað í verði, og þeir eru ekki jafn mikils virði í dag og þeir voru, ég persónulega myndi segja að þú ættir að geta fengið hvaða E39 bíl sem er ekki M5 undir 1.5m, besta dæmið sem menn geta alltaf spurt sig er hvað var sett á bílin hjá óskari icedev? og seldist hann strax? sá bíll var 530d,mtech 03árg með öllum rétta búnaðinum, rétta litnum, sportstólum og rúllaði upp hvaða tjékklista sem er, á sama tíma var 03 530d með leðri,comfort sætum,stóra skjánum og flr og flr flr (virkilega glæsilegur) sem húkti á bílasölu uppá höfða á 1500k sem seldist ekki á því og fór mun lægra, B&L seldu fyrir næstum 1.5árum 530d touring ekinn 200k á 900, sá var 01árg og facelift,
þannig að 2m+ fyrir 00 árg af 540mtech er ekki raunhæft, og ekki einu sinni þótt maður skæri stóran part niður af því verði,
ég veit að þetta hljómarlágt, fulllágt fyrir þá sem eiga slíka bíla, en þetta eru verðin sem ég er búinn að fylgjast með bílum vera fara á uppá síðkastið, tíðin hefur mikið með það að gera að sjálfsögðu,
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
|