Jæja fyrst maður er nú búinn að taka við þessu felgudóti þá ætla ég að fá smá álit hjá kraftinum.
Ég er ekki alveg að ná að ákveða hvernig mig langar að hafa þessar felgur.
Annað hvort kemur til greina að mála miðjurnar gylltar og pólera kantinn. Mig hefur lengi langað í svoleiðis felgur og það væri alveg gaman að hafa einn gang þannig til skiptanna.
Önnur uppástungan kemur frá honum Jón M
ar en það er að mála miðjuna í svokölluðum Audi Sport Silver (ljós carbon grár litur) og pólera lippið mikið. Mér lýst reyndar asskoti vel á þessa uppástungu líka.
Ég photoshoppaði smá í gærkvöldi og þar setti ég gyllt að framan en dökkgrátt að aftan, þetta yrði ekki gráii liturinn sem ég myndi setja á miðjurnar (ég cropaði bara eina af felgunum sem mási póstaði, hafði ekki tíma að lýsa miðjuna)


Þetta eru gylltu felgurnar, ég myndi reyndar vilja pólera lippið á þeim í staðinn fyrir að hafa það málað.
Svo gæti þetta með grárri miðju og póleruðu lippi litið einhvern veginn svona út; (þó yrði miðjan aðeins dekkri)

Kommentið endilega á þetta og ef þið hafið flottar uppástungur þá eru þær vel þegnar líka (Fyrir utan F2, mig langar ekki að mála þetta grænt eða appelsínugult

)