SteiniDJ wrote:
Jæja, tók bílinn í gær og þreif hann í tætlur. Þegar Eurovision var að klárast, þá bónaði ég hann með Purple Haze og gerði hann mega fínann fyrir kvöldið.
Svo seinna um nóttina er ég að keyra Reykjanesbrautina, þegar einhver durgur á japönskum pickup tekur framúr mér og ákveður skyndilega að honum langar rosalega að fara í golf. Keyrir þá útaf brautinni, á fullri ferð, inn á golfvöllinn Keili sem er víst við brautina (ekki að átta mig á því) og stútar svo vellinnum með því að spæna grasið upp þegar hann tók nokkra kleinuhringi.
Í þessu ferli tókst honum að rigna grjóti yfir mig, sem leiddi til þess að nú eru komnar stórar rispur á stærð við nögl.

Mönnum finnst þetta kannski ekki stórt, en þetta er algjör bömmer fyrir svona bón'homma' eins og mig. Hafði samband við lögreglu og sagði að þarna á ferð væri líklegast einhver bjáni sem þyrfti að skoða. Hún sagði mér að fara niður á Lögreglustöð daginn eftir til að reyna að fá þetta bætt á einhvern veg.
Hvernig er það, er einhver séns á því að fá þetta bætt? Þetta er alveg að fara með mig.

Sælinú, djöfulsins skítabömmer!!
Hvurslags andskotns SAUÐIR eru til hérna í umferðinni.
Þetta lið á held ég bara að taka vel fyrir og sekta VEL og jafnvel meira. Skil þig vel að vera fúll.
Hinsvegar sá ég þig einmitt vera keyra Hafnarfjarðarveg seint í nótt sennilega hálf 5 eða eitthvað og þá leit kagginn vel út, allavega í fjarska.
En með að fá svona bætt þá held ég að það gæti alveg verið hægt en það krefst þess að viðkomandi finnist held ég alveg örugglega því annars er ekki hægt að koma sök á neinn.
Ég lenti einu sinni í því að keyra yfir stein á miðjum hafnarfjarðarvegi sem rispaði felguna hjá mér(sem ég lét síðan taka og skvera)
Þá hringdi ég líka í lögreglu og hún kom og sagði að í einhverjum svona tilfellum væri eina leiðin til að fá bætur að gerandi eða sá sem átti orsök að því sem skemmdi yrði að finnast annars væri lítið hægt að gera.
Ef ég hefði verið þú hefði ég strax snúið við, tekið niður númer og bíltegund o.s.frv. kannski þú hefur gert það?
_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
