Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby shadow » Wed 17. Sep 2008 02:18

AFHVERJU var tryggingafélag að kaupa búlgarskt símafyrirtæki?

Þetta mun víst kosta FED 8.000 milljarða :shock:
shadow
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37

Postby bimmer » Wed 17. Sep 2008 11:46

Alveg einkennilegt hvað krónan botnar alltaf í kringum bankauppgjörin..... :roll:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Wed 17. Sep 2008 11:52

shadow wrote:AFHVERJU var tryggingafélag að kaupa búlgarskt símafyrirtæki?

Þetta mun víst kosta FED 8.000 milljarða :shock:
Seðlabankinn veitti AIG 85 milljarða dala neyðarlán en á móti kemur að bandaríska ríkið eignast 79,9% af hlutabréf tryggingafélagsins.


DEM hvað þetta er mikið af peningum :shock:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Stanky » Wed 17. Sep 2008 13:18

ValliFudd wrote:
shadow wrote:AFHVERJU var tryggingafélag að kaupa búlgarskt símafyrirtæki?

Þetta mun víst kosta FED 8.000 milljarða :shock:
Seðlabankinn veitti AIG 85 milljarða dala neyðarlán en á móti kemur að bandaríska ríkið eignast 79,9% af hlutabréf tryggingafélagsins.


DEM hvað þetta er mikið af peningum :shock:


Shiiii... hver verður eiginlega verðbólgan? :O
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Jónas » Wed 17. Sep 2008 13:31

Úff.

Þetta verður erfiður og dýr vetur.

Verður spennandi að sjá verðbólgutölur fyrir sept.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Thrullerinn » Wed 17. Sep 2008 14:02

Jónas wrote:Úff.

Þetta verður erfiður og dýr vetur.

Verður spennandi að sjá verðbólgutölur fyrir sept.


Sjæze krónan er aftur kominn í hrap...

Gengi gjaldmiðlaMynt Br.% Kaup Sala
EUR 2,48% 133,24 134,04
USD 2,19% 93,98 94,46
GBP 2,35% 168,15 169,01
JPY 1,93% 0,8911 0,8965
NOK 2,32% 16,05 16,1380
SEK 2,28 13,8580 13,9340
DKK 2,45% 17,8680 17,9660
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bimmer » Wed 17. Sep 2008 14:06

Hefur væntanlega líka eitthvað með það að gera að ég
flýg út á föstudaginn...... :whistle:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Wed 17. Sep 2008 14:10

Heyrst hefur að næstu aðgerðir seðlabankans séu að setja Þórð í farbann :lol:

Nú er ská mál að halda að draga saman seglin og minnka alla neyslu ef menn eru ekki byrjaðir á því nú þegar
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby ///M » Wed 17. Sep 2008 14:34

sææææll

auðken miðgengi
isk 178,2196
usd 95,6047
eur 135,6200
gbp 171,0214
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby Eggert » Wed 17. Sep 2008 14:37

Ég keypti vel af € áðan og er strax búinn að græða 10 þús kall af gengisbreytingunum, og það er ekki kominn klukkutími síðan :lol: :lol:
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby gunnar » Wed 17. Sep 2008 14:39

Eggert wrote:Ég keypti vel af € áðan og er strax búinn að græða 10 þús kall af gengisbreytingunum, og það er ekki kominn klukkutími síðan :lol: :lol:


Ímyndaðu þér nú ef þú hefðir verslað þetta þegar EUR í 80 :cry:

Félagi minn verslaði slatta af dollurum þegar dollarinn fór í 59 að mig minnir. Hann keypti fyrir um það bil hálfa milljón. Ágætis ávöxtun á því núna myndi maður halda.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Wed 17. Sep 2008 14:44

gunnar wrote:
Eggert wrote:Ég keypti vel af € áðan og er strax búinn að græða 10 þús kall af gengisbreytingunum, og það er ekki kominn klukkutími síðan :lol: :lol:


Ímyndaðu þér nú ef þú hefðir verslað þetta þegar EUR í 80 :cry:

Félagi minn verslaði slatta af dollurum þegar dollarinn fór í 59 að mig minnir. Hann keypti fyrir um það bil hálfa milljón. Ágætis ávöxtun á því núna myndi maður halda.


Já, segðu... ég var að spá í að kaupa þetta í seinustu viku þegar evran var í 122, en ákvað að bíða aðeins lengur, og sjá hvort hún styrktist ekki aðeins þegar nær dregur helgi (mín tilfinning er sú að það er oft svoleiðis, og svo veiking eftir helgi...)

En já, fúlt að sjá hvert það dró mann...

Ég held bara að það sé töluvert svigrúm fyrir frekari veikingu krónunnar, og svo sé nú ekki talað um að það er að koma að fjórðungsuppgjöri.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Zyklus » Wed 17. Sep 2008 15:04

GVT í 177,4.

Þetta er alveg skelfilegt en var nú nokkuð fyrirsjáanlegt ef maður bara skoðar aðeins staðreyndir málsins.

Ísland er skuldugasta land í heimi, þetta hefur reddast hingað til vegna þess að við höfum alltaf getað látið boltann rúllað áfram, þ.e.a.s. fengið ný lán til að endurfjármagna okkur. Núna er hins vegar alvarlegasta fjármálakrísa síðan í kreppunni miklu og það er enginn sem vill lána okkur núna (alveg eins og það lánar enginn fyrirtæki sem er skuldugt upp fyrir haus). Bankarnir eru með einhverja fleiri þúsund milljarða á gjalddaga á næstu árum og ef þeir fá ekki ný erlend lán á móti þeim sem eru á gjalddaga þá þurfa þeir annað hvort að selja erlendar eignir eða selja krónur í massvís til að kaupa gjaldeyrir til að borga lánin sín og þetta hefur auðvitað það í för með sér að krónan hrynur.
Og svo hefur náttúrulega enginn áhuga á gjaldeyri eins og krónunni í svona ástandi eins og er í heiminum í dag. Þannig að það er bara alls ekki fjarlægur möguleiki að gengisvísitalan fari upp fyrir 200.

Ég veit að Geir segir að allt sé í góðu lagi og sömuleiðis greiningadeildir bankanna en ef þið bara skoðið málinn aðeins sjálfir þá sjáið þið að sú glansmynd sem hefur verið teiknuð af íslenska „efnahagsundrinu“ er kannski ekki eins glæsileg og af er látið. Ástandið er kannski ekki svo slæmt akkúrat í augnablikinu en þá á eftir að versna til muna.
Verðbólgan á áfram eftir að verða há, atvinnuleysi að aukast, ofan á þetta bætis að öll lán fólks munu stórhækka (bæði erlend lán sem og verðtryggð). Þannig að á sama tíma og greiðslubyrðin er að stóraukast þá er fólk jafnvel að missa vinnuna og ef það heldur vinnunni sinni þá er kaupmáttur launanna að stórminnka.
Við getum því búist við fjöldagjaldþrotum bæði fyrirtækja og einstaklinga næstu misseri.
Þetta þýðir það að bankarnir munu þurfa að afskrifa mikið af lánum sínum á sama tíma og fjármagnsmarkaðir eru lokaðir og því verða næstu misseri erfið fyrir bankanna. En sem betur fer eru eiginfjárhlutföll íslensku bankanna mjög góð miðað við aðra erlenda banka. Aðal vandinn er að erlendir fjármagnsmarkaðir eru lokaðir og það er auðvitað mjög slæmt fyrir banka sem reiða sig á erlenda fjármögnun.

Og ef fólk hefur áhuga á að skoða sjálft t.d. stöðu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum þá getur það nálgast þær upplýsingar t.d. hér.

Þarna getið þið t.d. séð að heildarskuldir þjóðarbúsins eru yfir 10.000 milljarðar króna en eignirnar eru um 8000 milljarðar króna. Nettó staðan er því -2000 milljarðar króna. Þetta þýðir það að hvert mannsbarn á Íslandi er með neikvæða nettóstöðu gagnvart útlöndum upp á tæpa 7 milljónir. Athugið að þetta er gagnvart útlöndum, því eru innlendar eignir og skuldir ekki teknar með.
Þannig að ef við fáum ekki erlent fjármagn á næstunni til að geta látið boltann rúlla áfram þá má segja að við séum í svolítið vondum málum vægast sagt.

En við skulum samt ekki örvænta, það er ljós í enda ganganna, göngin eru bara frekar löng.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby arnibjorn » Wed 17. Sep 2008 15:16

Það er ekkert gaman að lesa póstana þína Zyklus :evil:

:)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gunnar » Wed 17. Sep 2008 15:16

Djöfull er ég samt ógeðslega feginn að hafa ekki tekið mér bílalán þegar það var sem auðveldast og maður þurfti bara að skrifa undir og labba út án þess að borga krónu.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests