Nurburgring áðan. Mætti snemma og var stutt. Tók með mér tvo félaga sem eru sennilega smitaðir núna.
Anyway... bíllinn er algjör draumur að keyra, jafnvel í rennblautu eins og áðna. Það var mikið confidence í gangi öll trixin í bókinni reynd. Náði mörgum flottum poweslædum á ólíklegustu stöðum.
Að sjálfsögðu býður maður uppá að eitthvað gerist og áðan tók ég tvo 360°c snúninga, annar var ok (fyrir utan að nást á mynd
) en hinn var í Adenau Forst (vinstri hægri begjunni) og þar keyrði ég dálítið hressilega að curbið.
Þokuljósið bílstjóramegin týndist, stuðaracoverið poppaði út og bremsukælingarductið farþegamegin losnaði. Þetta er ekkert stórmál að laga og kostar ekki mikið, sem betur fer slapp vinskeiðin alveg enda smá give í honum (inn og út).
Ég náði að laga stærstan part af þessu á staðnum og það þrufti ekki einu sinni verkfæri. Eina sem vantar núna er kastarinn. Ég er alvarlega að pæla í því að taka bara hinn úr stuðaranum og reyna að útbúa loftinntak í staðin.
Þetta er í annað skiptið sem ég fer uppeftir og það er grenjandi rigning, og þegar ég gefst upp og er kominn heim þá er komin sól.
Næst tek ég frá heilan dag í þetta, eða fer ekki af stað fyrr en það er komin sól.