Fleygar setningar úr tjónaskýrslum

Hér skal spjalla um BMW.

Fleygar setningar úr tjónaskýrslum

Postby ValliP » Thu 31. Jul 2003 12:45

Fleygar setningar úr tjónaskýrslum :lol:

" Gulli var gestkomandi hjá Önnu og Jóni. Gulli þurfti skyndilega að kasta upp og fór inn á baðherbergi og kastaði upp í klósettið. Anna

stóð yfir honum og sturtaði niður þegar hann hafði lokið við að kasta upp. Við uppköstin missti Gulli lausan tanngóm í klósettið, en tók ekki

eftir því fyrr en hann fór út úr baðherberginu."

"...við byrjuðum að taka U-beygju en þurftum að bíða eftir að bílarnir sem komu úr gagnstæðri átt væru farnir en eftir nokkurra sekúndna

biðklessir bíll inn í okkur og flaug hausinn á mér í andlit bílstjórans..."

"...Hún kveður tennur í neðri gómi hafa skekkst við áreksturinn en að sjálf hafi hún rétt tennurnar með handafli og síðan farið til tannlæknis

sem hafi verið ánægður með handverkið og taldi tennurnar sem óðum að festast..."

" Jón var í kaffi og var að spila Manna. Hann fylgdi slagnum svo vel eftir að hann barði í borðið og braut á sér höndina "

"Ég rakst á kyrrstæðan vörubíl, sem var að koma úr hinni áttinni"

"Ég hélt að bílglugginn væri opinn, þangað til ég hafði stungið höfðinu út um hann"

"Ég sagði lögreglunni að ég væri ómeiddur, en þegar ég tók ofan hattinn komst ég að því að ég var höfuðkúpubrotinn"

"Það kom bara ósýnilegur bíll, rakst á mig og hvarf"

"Ég sá að gamli maðurinn mundi aldrei hafa það yfir götuna og keyrði því á hann"

"Ég var búinn að keyra í 40 ár, þegar ég sofnaði við stýrið og lenti í slysinu"

"Sá fótgangandi stóð og vissi ekkert í hvora áttina hann átti að fara svo ég keyrði yfir hann"

"Ég var á leiðinni til læknisins, þegar púströrið datt aftur úr mér"

"Ég var að reyna að drepa flugu og keyrði þarna á símastaurinn"

"Hinn bíllinn keyrði beint á mig, án þess að gefa neitt merki um hvað hann ætlaði að gera"

"Það bakkaði trukkur í gegnum rúðuna á mér og beint í andlitið á konunni"

"Maðurinn var allsstaðar á veginum, ég varð að taka heilmargar beygjur áður en ég rakst á hann"

"Ég beygði frá vegbrúninni, rétt leit á tengdamömmu og hentist út á veginn hinum megin
User avatar
ValliP
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 26
Joined: Wed 16. Jul 2003 09:59

Postby Stefan325i » Thu 31. Jul 2003 23:46

djöfulsins snild ég er í hláturskrampa hérna

Sá fótgangandi stóð og vissi ekkert í hvora áttina hann átti að fara svo ég keyrði yfir hann"


ROFL :lol:
Last edited by Stefan325i on Fri 01. Aug 2003 00:03, edited 3 times in total.
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby bjahja » Thu 31. Jul 2003 23:55

hahahahhahaha, þetta er snilld
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby hlynurst » Fri 01. Aug 2003 01:55

"Ég sá að gamli maðurinn mundi aldrei hafa það yfir götuna og keyrði því á hann"

Þetta er snilld! :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Fri 01. Aug 2003 02:00

Weeeeeeeeird shit ...... mér fannst þetta ekki einusinni broslegt... :( :shock: :(

Prófa að lesa þetta aftur á morgun þegar ég kem úr vinnunni... I'm just to damn fewkin' tired! vei vinna eftir 4 tíma! gG!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby benzboy » Fri 01. Aug 2003 10:09

:lol: :lol: :lol:
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

issss Þetta er ekkert

Postby Tommi Camaro » Sat 02. Aug 2003 18:57

Það munaði minnstu að ég hafi verið að skrifa tjónaskíslu um daginn hún hefði hljómað svona , bílstjórinn fyrir framan mig keyrði utan i kant og framrúðan hjá mér brotnaði vegna hjólkopp sem tókst á loft .
Er ekki að grínast með þetta en þetta SKEÐUr ..
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests