Þegar maður keyrir um einzog Azni á M5 þá hlaut að koma að því að maður fengi hraðasekt. En er það nú ekki bara allt í lagi að fá fyrstu hraðasektina sína þegar maður er orðinn þrítugur
Það sem kom mér hinsvegar á óvart, er að það séu hraðamyndavélar í gangi innanbæjar!
Ég hef ekkert heyrt um það og vildi því bara koma því á framfæri. Ég trúði því ekki þegar ég fékk flassið á mig að þetta væri hraðamyndavél, þetta var sama myndavél og myndar þá sem fara yfir á rauðu. Hélt hún væri kannski eitthvað vitlaust stillt og var alveg búinn að setja mig í stellingar til að rífast út af rauðu ljósi!
En nei, ég fékk bréfið í dag. Var á 89 (92- 3km vikmörk) á 60km svæði (þetta var á horninu á Bústaðavegi og Flugvallarvegi, þegar maður er að keyra upp að Shell). Og fékk því sekt upp á 20.000.- (15.000 ef ég borga strax). Og fæ þess auki 1 punkt á teinið.
En ekkert annað um þetta að segja, ég átti þetta svosum alveg skilið, er bara feginn að ég var ekki stoppaður af lögguni.. get allavega haldið áfram að monta mig af því
Sæmi


