Leki í bensíntanki

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Leki í bensíntanki

Postby Geirinn » Fri 31. Mar 2006 00:20

Sælir.

Nú er eitthvað í kringum bensíntankinn hjá mér (aftan á bensíntanknum hægra megin) farið að leka... og svona.. frekar hressilega miðað við bensín.

Spurningin er.. hversu mikil hætta (ef einhver) er að keyra þegar þetta er svona ? Þetta dropast út hægt... en eftir smá tíma er kominn góður pollur.

Image

Þar sem bensínið fer ofan í tankinn (vinstra megin aftaná).

?????? :cry: :cry:

Með von um góð og fljót svör, kveðja :)
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Geirinn » Fri 31. Mar 2006 10:32

50 views og ekkert reply. Awwww :lol:

Verður allavega kíkt á þetta á eftir. Lekur ennþá og allt í hassi... kem allavega með update á þetta fyrir áhugasama.

Má samt endilega koma með komment á þetta.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Hannsi » Fri 31. Mar 2006 10:55

gerðist svipað á fimmunni minni þá var gat á bensín röri.
Er ekki viss hvort það sé bensín rör á þessum stað sem þú seigir að leki þannig að ég veit ekki hvað þetta gæti verið
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Geirinn » Fri 31. Mar 2006 10:58

Neim það er spurning. Öll "pannan" undir bensíntanknum... þ.e. þetta svæði þar sem ég er að tala um er bensínblautt þannig ég er ekki alveg klár á því hvaðan það kemur nákvæmlega. Hallast samt að því að þetta sé aftaná.

Hins vegar er líka spurning hvort að hosuklemman sem heldur rörinu þar sem maður setur bensínið á bílinn sé farin og að það hætti að leka þegar bensínið er komið niðurfyrir rörið. Bensínmælirinn sýnir 50 L núna og það lekur ennþá (reyndar parkeraður í brekku með nebbann niður þannig að það ættu að vera enn meiri líkur á því að lekinn stoppi við það)....

Ohh þetta er svo gaman :lol:
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby Hannsi » Fri 31. Mar 2006 11:05

ef þú kæmist undir hann þá ættir þú að geta þurkað allt bensínið og reynt að sjá hvaðan lekinn kemur.

annars þá var soldið augljóst hvar bensín lekinn var hjá mér því að það var farið að kristallast í kringum gatið á rörinnu :)
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby @li e30 » Fri 31. Mar 2006 21:50

Best er að taka tankinn úr , ef þú hefur aðstöðu til þess, frekar erfitt að greina hvar lekur nema að kippa honum undann ...
Það er lítið mál að taka hann undann, þarft að ná skaftinu úr , og svo losa slöngur og annað sem tengist tank elementinu, og þá er bara eftir að losa 5 eða 6 skrúfur...
Ef að gatið er lítið þá skolaru bara tankinn vel að innan með vatni og lóðar svo í.. Ef gatið er í stærri kantinum þá er best fyrir þig að kaupa nýjan tank .. kostar ekkert svo mikið, held að það sé eitthvað í kringum 20 þús .. þori samt ekki að fullyrða neitt.
Atli
Citroen Saxo VTS
Van´s RV4

E30 325ix touring (Seldur)
E36 325i Coupe (Seldur)
E34 ///M5 (Seldur)
E30 325i Coupe (Seldur)
User avatar
@li e30
Kassabílstjóri
 
Posts: 165
Joined: Fri 03. Oct 2003 14:43
Location: Reykjavík

Postby Geirinn » Tue 04. Apr 2006 00:04

Já. Kiddi tók þetta að sér.. gallinn er bara að þetta er fjandi ryðgað, þ.e. stúturinn sem maður dælir ofan í og endar í kútnum. Rétt áður en það endar í kútnum er hosuklemma sem lekur þrátt fyrir tilraunir til að gera við það.

Næsta mál er að prófa að pússa þetta upp og festa betur. Ef það gengur ekki þá fer ég í að finna mér nýjan tank.

Fjandans vesen á þessu drasli (á einhver tank sem hann er til í að selja ? => EP).
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests