Góðan og blessaðan daginn!
Hugbúnaðurinn á bak við myndasafn BMWKrafts hefur verið uppfærður.
Þessu fylgja nokkuð miklar útlitsbreytingar og nýjir og sniðugir fídusar bætast við, til dæmis random image sem á það til að grafa upp ansi skemmtilegar myndir úr safninu.
Ný slóð á myndasafnið er
http://myndasafn.bmwkraftur.is/ og auðvitað er líka linkur á myndasafnið á forsíðu
BMWKrafts.
Athugið að
vísanir í gamla safnið virka ekki lengur og því þarf að breyta þeim vísunum í slóðina á nýja myndasafnið.
Þeir sem hafa haft prufuaðgang að myndasafninu ættu að hafa óbreyttan aðgang og fljótlega eftir áramót (seinnihluta janúar / byrjun febrúar) munu svo allir gildir meðlimir í klúbbnum fá aðgang að sínu eigin safni.