bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 18. Apr 2024 10:58

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
PostPosted: Mon 06. Dec 2004 02:00 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Hérna að undanförnu hafa komið upp nokkur mál þar sem að notendur virðast
misskilja hverra umræðna bmwkraftur er vettvangur fyrir.

Það skal segjast strax að á bmwkrafti hefur aldrei verið mikil ritskoðun,
stefna okkar er mjög frjálsleg, nokkurn veginn anything goes.
Til þess að geta leyft okkur að hafa slíka stefnu höfum við búið til nokkra
flokka umræðna til þess að hver og einn geti lesið það sem honum finnst skipta
máli og að lokum var einn flokkur búinn til, Off-Topic, til þess að þær
umræður sem ekki passa vel í aðra flokka hafi einhvern dvalarstað.

Við (moderators) höfum haft það að markmiði að halda spjallinu hreinu, þ.e.
grófar persónulegar árásir og slíkir póstar hafa verið þurrkaðir út, og
stærstu deilurnar, þar sem efni þráðar hafa verið komnar langt út fyrir
upprunalegt efni, hafa verið stoppaðar af.

Núna þarf að undirstrika eitt.

BMWKraftur er fyrst og fremst BMW spjall, þar á eftir er hann bílaspjall.
Það að Off-Topic umræður fari stundum (oft) út í mál líðandi stundar er
fullkomlega eðlilegt, og allir hafa gaman af því (þeir sem hafa það ekki
geta sleppt að lesa það).

En BMWKraftur er EKKI vettvangur RASISMA, Pólítískra ritgerða eða
annars slíks efnis þar sem hann er eingöngu notaður sem dreifimiðill!

Þar sem þessi texti er settur fram meira eins og hugleiðingar mínar heldur
en eiginlegar reglur mætti auðveldlega skilja sem svo að þetta séu bara
leiðbeiningar um notkun spjallsins, frekar en reglur.
Hafið samt í huga að stjórnendur spjallsins munu ekki hika við að banna
notendur brjóti þeir ítrekað / gróft á þessum reglum.

Vilji einhver koma skoðun sinni á framfæri er hægt að senda tölvupóst á
admins@bmwkraftur.is



Að lokum vil ég vitna í samning sem notendur undirrita við skráningu
inn á þetta spjall.

Quote:
Þó svo að umsjónarmaður og stjórnendur þessa spjallrása munu reyna að fjarlægja eða breyta öllum innleggjum sem eru óviðeigandi efni eins fljótt og mögulegt er þá er ómögulegt að yfirfara hvert einasta innlegg frá notendum. Þess vegna samþykkir þú að öll innlegg sýnir skoðun höfundar en ekki umsjónarmanns, stjórnanda spjallrásanna eða vefstjóra(nema innlegg frá þeim sjálfum) og þar af leiðandi er ekki hægt að gera þá ábyrga fyrir þeim.

Þú samþykkir að senda ekki inn nein innlegg þar sem kemur fram móðgandi, særandi, dónaleg, hótanir, hatursfull, kynferðisleg eða annað efni sem getur verið bannað samkvæmt lögum. Ef slíkt kemur fyrir þá verður viðkomandi útilokaður frá öllum samskiptum á þessum umræðum (þjónustuaðili verður látinn vita). IP tala allra innleggja er skráð til að sporna við svona misnotkun. Þú samþykkir að vefstjóri, umsjónarmaður eða stjórnandi þessara spjallrása hafa fullan rétt til að fjarlægja, breyta, færa eða loka einhverjum spjallþræði hvenær sem er ef þeir sjá ástæðu til. Sem notandi þá samþykkir þú að allar þær upplýsingar sem þú hefur slærð inn verði Vistaðar á gagnagrunni okkar. Þó svo að þessar upplýsingar verði ekki sendar til þriðja aðila án þíns samþykkis þá geta vefstjóri, umsjónarmaður eða stjórnandi þessara spjallrása ekki verið saksóttir ef einhver brýst inn í gagnagrunninn sem verður þess valdandi að upplýsingar eru teknar.

Þetta umræðu kerfi notar vefkökur til að geyma upplýsingar á þinni tölvu. Þessar vefkökur innihalda ekki neinar þær upplýsingar sem þú slærð inn hér, þær eru einungis til að auðvelda notkum hópsins. Netfangið er einungis notað til að senda staðfestingu um aðgangsorð og upplýsingar um þína skráningu (og til að senda þér nýtt aðgangsorð ef þú gleymir því).

Með því að ýta á samþykkt hér neðanvið þá samþykkir þú þetta.

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group