Kæru félagar.
Við höfum ákveðið að setja á fót skemmtinefnd. Nefndin mun sjá um allskyns skemmtanir, ásamt því að halda árshátíð BMWKrafts.
Þeir sem hafa áhuga, tíma og telja sig geta gegnt þessu af sóma eru beðnir um að senda upplýsingar um sig, (ef viðkomandi hefur áður gegnt svipuðu starfi að fá að vita hvar og hvernig), ásamt þessu venjulega nafni síma o.þ.h á admins@bmwkraftur.is
Þann 1. ágúst verður lokað fyrir umsóknir!
Aðeins gildir meðlimir geta boðið sig fram!
Meðlimir fá svo að kjósa um þá sem bjóða sig fram í leynilegum kosningum!
f.h. stjórnar BMWKrafts,
Gunnar




