Jæja þá er komið að því. DYNO Dagur II er að fara að verða að veruleika.
Laugardaginn 11. október kl 11 ætlum við að mæta í Tækniþjónustu Bifreiða og láta DYNO mæla bílana okkar!
Verð á mælingu er 3900 kr. á bíl, en almenn verð er 7000 kr.
ATH. að þetta er
AÐEINS fyrir BMW bíla og
NAGLADEKK ERU BÖNNUÐ
Þeir geta ekki tekið fleiri en 10-12 bíla þannig að það er gott að hafa hraðann á því það eru bílar skráðir nú þegar!
Öllum er frjálst að mæta og horfa á, en égg vill biðja þá sem ÆTLA að láta mæla bílana sína að skrá sig með því að senda mér póst á
gunni@bmwkraftur.is sem er svohljóðandi:
Subject: DYNO Dagur #2
Ég ætla að láta mæla bílinn minn
Fullt nafn (spjallnafn í sviga)
Símanr. (helst GSM)
Bíll
ATH. að skráning er bindandi!
með DYNO kveðju,
Krafturinn