Page 1 of 1

Var að skoða E90

PostPosted: Mon 21. Mar 2005 14:30
by jonthor
Skrapp upp í BMW hér í París í hádeginu og skoðaði Nýja þristinn, þvílík fegurð. Reyndar finnst mér skref afturábak í innréttingunni á öllum bílunum að byggja ekki "í kring um" ökumanninn. En overall fær þessi bíll eðaleinkunn. Mér finnst framsvipurinn á bílnum með því fallegasta sem BMW hefur smíðað.

PostPosted: Mon 21. Mar 2005 14:52
by grettir
Sammála, þetta er helvíti töff bíll.
Smá info hérna
http://www.webwombat.com.au/motoring/news_reports/bmw-3-series-e90.htm

PostPosted: Mon 21. Mar 2005 14:58
by íbbi_
mér finnst einmitt innrétingin helsti mínusin við nýju bimmana, ekkert að henni náttla en mér finnst hún ekki nógu flott heldur, í fyrsta skipti síðan ég veit ekki hvenar finnst mér Benzarnir vera koma með flottari mælaborð

PostPosted: Mon 21. Mar 2005 15:05
by gstuning
Eitt sem mér líst vel á er fjöldinn af BMW bílum seldum á síðasta ári,
næstum milljón stykki, það er mikið af nýjum vélum í eldri bíla ;)

PostPosted: Mon 21. Mar 2005 18:41
by mags
Sammála... mér finnst hann mjög vel heppnaður. Settist inn í einn í München um daginn og kom á óvart hvað hann virtist rúmgóður, a.m.k. fyrir fullorðna. Sá bíll var dökkblár 325i, með ljósbrúnni leðurinnréttingu og Alpina felgum 8) .Það eina sem ég hefði gert öðruvísi eru afturljósin... en ég fæ víst seint vinnu í hönnunardeildinni þarna.

(En talandi um framsvip þá sá ég hér um daginn tvær BMW sjöur hlið við hlið - E65 og svo nýja faceliftið. Persónulega finnst mér gamla bara miklu flottari þó ég hafi ekki þolað hana fyrst. Faceliftið er einhvern veginn búið að skemma þetta brútal lúkk sem mér finnst núna orðið flott)

PostPosted: Tue 22. Mar 2005 21:15
by íbbi_
vá hvað ég er sammála! ég þoldi aldrei framendan á E65 þangað til e´g sá facelyftið.. vantar einmitt allt brútalið en betri að aftan þó