Page 1 of 2

E30 M3 Bubble car

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 22:28
by bjahja
Datt í hug að pósta þessum, fyrst menn voru að tala um M3 í góðu ástandi :D

Þetta er semsagt E30 M3 sem er keyrður tæpa 18.000 km frá upphafi. Eigandinn ákvað þegar hann var nánast nýr að eyða mörg hundruð klukkustundum í að þrífa ALLT og bókstaflega ALLT í bílnum og svo setja hann í þessa skemmtilegu loftbólu :lol: Síðan var hann seldur nýlega fyrir einhverja $45.000.

Þótt að mér finnist að bílar ættu að vera notaðir og keyrðir þá væri nú alveg töff árið 2020 að eiga algjörlega nýjan e30 m3 ;)

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Fleirri myndir

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 22:36
by saemi
Djísusss maður.

Þessi er eitthvað tæpur á geði!

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 22:44
by oskard
Þessi bíll er seldur :D einhver ríkur feitur kall keypti hann og ætlar að tracka á honum :?

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 22:57
by Svezel
oskard wrote:Þessi bíll er seldur :D einhver ríkur feitur kall keypti hann og ætlar að tracka á honum :?


til þess er nú leikurinn gerður :wink:

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:06
by fart
Nóg af öðrum M3 til að tracka á.

Þessi er best geymdur í kúlunni.

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:18
by Chrome
fart wrote:Nóg af öðrum M3 til að tracka á.

Þessi er best geymdur í kúlunni.

Amen!!! [-o<

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:20
by Djofullinn
Shæt :shock:

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:23
by oskard
það fyrsta sem feita kallinn gerði var að rífa original vélina úr honum
og setja einhverja mega buildaða 2,5 lítra s14 í hann sem að virkaði
síðan ekki :lol:

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:23
by saemi
:pale: :drunk: :pale:

PostPosted: Sat 05. Mar 2005 23:40
by Chrome
oskard wrote:það fyrsta sem feita kallinn gerði var að rífa original vélina úr honum
og setja einhverja mega buildaða 2,5 lítra s14 í hann sem að virkaði
síðan ekki :lol:

Það ætti að setja lög gegn því að svona fólk fengi að eignast svona mola :evil:

PostPosted: Sun 06. Mar 2005 07:12
by gunnar
Chrome wrote:
oskard wrote:það fyrsta sem feita kallinn gerði var að rífa original vélina úr honum
og setja einhverja mega buildaða 2,5 lítra s14 í hann sem að virkaði
síðan ekki :lol:

Það ætti að setja lög gegn því að svona fólk fengi að eignast svona mola :evil:


Nákvæmlega, hversu sorglegt sem það er nú að nota svona bíl ekki þá er það bara svo sérstakt að fá að eiga svona bil alveg óskemmndan og ónotaðan, finnst mér að minnsta kosti.

PostPosted: Sun 06. Mar 2005 08:53
by bebecar
Hvað er þetta, þetta er nú bara bíll :lol:

Mér finnst nú bara ílla farið með góðan bíl að setja hann í eitthvað vitawrap og geym'ann bara :roll:

Þetta er ekki M bíll nema hann sé notaður 8)

Hinsvegar er auðvitað furðulegt að einhver sem leitar sér að track bíl skuli endilega velja heilasta bílinn til að rífa í spað :?

PostPosted: Sun 06. Mar 2005 09:50
by fart
Mér finndist nú hálf glatað ef einhverju porsche yfirmanninum myndi detta það í hug að taka alla fínu bílana út úr Porsche safninu tæta þá niður.

Nóg er til af þessu til sölu, bæði heillegt og moddað.

PostPosted: Sun 06. Mar 2005 11:20
by gstuning
Mér er sama um bílinn sjálfann það á bara að keyra þetta,

En djöfull væri ég til í að eiga svona hreinann bíl,

t,d bremsudælan ,, það er litur sem ég myndi vilja á minni

PostPosted: Sun 06. Mar 2005 11:59
by bebecar
Það er auðvitað rétt að það sé slatti til af þessu til sölu...

Hinsvegar finnst mér bílarnir síður en svo verri þó þeir séu notaðir og standi svo á safni þess á milli t.d. Mér finnst það algjör synd ef það er ekki verið að keyra safngripina.

Menn keyra nú ansi rösklega í Classic Car keppnum og stundum verða óhöpp þar sem bílarnir rústast, vissulega "svekkjandi", en menn gera þá bara upp og keyra svo aftur eftir uppgerðina....

Image

Ekki gaman að strauja einn svona í frammúrakstri, en menn taka nú samt sénsinn á því - hvað söfn varðar þá finnst mér það nú bara skemmtilegra að bílnum fylgi saga, og finnst mér hann ekki neitt verri þó það sé smá steinkast á honum og smá slit á sætum o.s.frv....

En það þýðir ekki að ég vilji ekki heldur hafa bíla á söfnum til að skoða - mér finnst bara bæði best :wink: