Page 1 of 2

Ágætt framboð á E34 M5 þessa daganna.

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 17:45
by Kristjan

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 17:51
by Svezel
Ég held að efsti sé á Aluett en ekki Rondell felgum og sé gamli bíllinn hans Sæma.

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 17:52
by Djofullinn
Svezel wrote:Ég held að efsti sé á Aluett en ekki Rondell felgum og sé gamli bíllinn hans Sæma.

Og sé ekinn töluvert meira en 180k ef mig minnir rétt

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 18:53
by íbbi_
einmitt,

ég er búin að skoða mj877 og hólí fokk hvað þetta er geðveikur djöfulsins bíll og ef M5 væri ekki miklu meira fullorðins en ég sjálfur væri ég löngu búin að kaupa sona dót :(

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 19:00
by BlitZ3r
nóg af þessum bílum til sölu en lítið af fólki sem kaupir þá. bíllinn hans kull er búinn að vera til sölu frá því í fyrra sumar og þessi svarti er búnnað vera lengi skráður á solu

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 19:19
by zazou
Og hver af þeim er málið?

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 19:20
by Djofullinn
BlitZ3r wrote:nóg af þessum bílum til sölu en lítið af fólki sem kaupir þá. bíllinn hans kull er búinn að vera til sölu frá því í fyrra sumar og þessi svarti er búnnað vera lengi skráður á solu

Og samt haldast þeir í verði... Svolítið furðulegt :roll:

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 19:28
by BlitZ3r
1.0-1.3millur eru svo sum ekkert mikið fyrir 315hp bíl, þannig séð

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 20:56
by íbbi_
verður að taka tillit til samt að sumir þessara bíla eru búnir að skipta um eigendur oftar en einu sinni en eru ennþá á söluskrám

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 21:01
by bebecar
Djofullinn wrote:
BlitZ3r wrote:nóg af þessum bílum til sölu en lítið af fólki sem kaupir þá. bíllinn hans kull er búinn að vera til sölu frá því í fyrra sumar og þessi svarti er búnnað vera lengi skráður á solu

Og samt haldast þeir í verði... Svolítið furðulegt :roll:


Ég held að menn vilji hreinlega ekki selja þetta fyrir mikið minna en þetta, it just ain't worth it :wink: Hefur bílverð ekki líka almennt farið hækkandi?

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 22:53
by íbbi_
hækkar ekki verð einstakra hluta í krónum eftir auknum kaupmætti landsmanna?

PostPosted: Tue 01. Mar 2005 23:56
by Schnitzerinn
Að mínu mati er bíllinn hans Sæma BARA málið og vera langsterkasti kandídatinn af þessum e34 M5 sem eru í gangi hér á landi.

PostPosted: Wed 02. Mar 2005 00:07
by Kull
Þessir bílar lækka mjög hægt þegar þeir eru komnir á þennan aldur enda búnir að lækka gífurlega í verði frá því þeir voru nýjir. Þessi verð finnst mér líka mjög góð, maður er að sjá 525-535 og álíka á 7-800 þús.

Fjórir bílar telst kannski ekki mikið ef menn setja hlutina í samhengi en vissulega er fínt úrval núna.

Ég hef að vísu aldrei auglýst bílinn annars staðar en hérna á korknum en mun væntanlega fara að reyna að selja af meiri krafti á næstunni.

Að mínu mati eru mjög góð kaup í þessum bílum, en get kannski ekki talist hlutlaus. Flestir bílarnir eru búnir að fara í gegnum mikið viðhald, búið að skipta um langflesta slithluti, og dýra hluti einsog kúplingar og svoleiðis. Ef menn eru heppnir gætu þeir sloppið við dýrt viðhald í langan tíma enda vitað að vélarnar í þessum bílum eru skotheldar.

PostPosted: Wed 02. Mar 2005 00:12
by arnib
Í raun er eini gallinn við E34 M5 að hann eyðir miklu bensíni hvort sem þú ert að nota allan kraftinn eður ei.

Ég held svei mér þá að það sé .. EINI gallinn :)

Elska þessa bíla.

PostPosted: Wed 02. Mar 2005 00:22
by Svezel
arnib wrote:Í raun er eini gallinn við E34 M5 að hann eyðir miklu bensíni hvort sem þú ert að nota allan kraftinn eður ei.

Ég held svei mér þá að það sé .. EINI gallinn :)

Elska þessa bíla.


Ég held að þetta sé einmitt málið, þeir nota dálítið hressilega af bensíni en skila því svo aftur í akstursánægju.

Performance bargain nr.1 á Íslandi í dag