Page 1 of 1

325i e36

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 18:27
by Arnar
Veit einhver eitthvað um þennan bíl :?: 92 árg. keyrður 180xxx þús, topplúga og hann er staðsettur í Rvk.
Allar upplýsingar vel þegnar...

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CARIMAGE&BILASALA=16&BILAR_ID=123383&IMAGEID=4478

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 18:53
by gunnar
Fór og kíkti á hann, gírhnúðurinn er laus.. Ekkert big deal ;) Svo eru fullt af reikningum með bílnum sem eru í honum, búið að skipta um eitthver ósköp. Lakkið er ágætlega farið. Mótorinn vel þrifinn þannig gaurinn virðist hafa vitað eitthvað um bíla kannski ;)

Hann vill engin skipti nema þá kannski á 540, hint á þig Nökkvi ;)

Virðist vera ágætis bíll..

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 18:57
by Djofullinn
Ég heyrði einhverntímann að þetta væri tjónatík....
Veit það samt ekki fyrir víst. Ég mundi allavega tékka á því áður en þú spáir meira í honum.

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 18:57
by gunnar
Djofullinn wrote:Ég heyrði einhverntímann að þetta væri tjónatík....
Veit það samt ekki fyrir víst. Ég mundi allavega tékka á því áður en þú spáir meira í honum.


Það gæti útskýrt gott lakk... ?

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 19:09
by Nökkvi
gunnar wrote:Hann vill engin skipti nema þá kannski á 540, hint á þig Nökkvi ;)


Takk fyrir hintið Gunnar. Væri alveg til í að eignast 325i aftur. En ef maðurinn er að setja 780 þús á bílinn held ég að það verði erfitt að semja :roll:

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 19:29
by gunnar
Já mér finnst hann frekar dýr :?

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 21:42
by Gunni
gunnar wrote:Já mér finnst hann frekar dýr :?


Ég mundi halda að þetta væri bara markaðsverð fyrir svona bíl á íslandi.

Til rökstuðnings þá hvet ég þá sem efast að kíkja á þennan link hér: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=6942

Eins bíll sama gjald.....og seldur!

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 21:45
by Haffi
Afi vinar míns á þennan bíl, það er satt að það er vel smurt á hann en þetta er mjöög góður bíll samt sem áður. Hafi eitthvað tjón verið þá hefur það verði MJÖG vel gert við.

PostPosted: Wed 27. Oct 2004 22:51
by Djofullinn
Haffi wrote:Afi vinar míns á þennan bíl, það er satt að það er vel smurt á hann en þetta er mjöög góður bíll samt sem áður. Hafi eitthvað tjón verið þá hefur það verði MJÖG vel gert við.

Já þá er þetta sennilega annar bíll. Minnti bara að þetta væri númerið á hinum. Þá mæli ég hiklaust með að þú kíkir á þennan marhhhh

PostPosted: Thu 28. Oct 2004 00:26
by Arnar
Ég fór á ekjuna, og það er ekkért tjón skráð á hann...En það er búið að skipta 3 sinnum um spindlana síðan hann var fluttur inn 1996.. Er það algengt að þeir séu að fara svona oft :? svo hefur verið sett út á lekamengun, pústið ogfl.

PostPosted: Thu 28. Oct 2004 00:46
by Joolli
Jamm, afi minn er að selja þennan bíl... Og nokkvi, afi var búinn að kíkja á bílinn þinn... Hann vildi hann ekki því það er ekki topplúga.. :? Þetta er virkilega sneddí bíll.

PostPosted: Mon 01. Nov 2004 12:03
by Joolli
Þessi bíll er seldur

PostPosted: Mon 01. Nov 2004 16:33
by íbbi_
já ég held að ég hafi einmitt séð "eiganda" þessaa þráðs á honum áðan, til
hamingju :!: