Page 1 of 2

BMW 100CS 1977

PostPosted: Thu 15. Jul 2004 21:39
by bebecar
Er þetta ekki alveg málið - ég er OFBOÐSLEGA hrifin af þessu, eitt svona á tilboði, 25% út og 2.75% vextir... veit ekkert hver afborgunin er... tékka kannski á því á morgun.

Image

Any comments? Maður verður nú að reyna að finna annan bimma :lol:

PostPosted: Thu 15. Jul 2004 23:00
by íbbi_
nei fjúff ekki láta sona þetta hjól er ó-ó! eða allavega finnst mér þetta ekki alveg að gera sig :?

PostPosted: Thu 15. Jul 2004 23:01
by Jón Ragnar
Finnst BMW hjólin vera skelfilega ófríð greyin :(

BMW R 100 RS

PostPosted: Thu 15. Jul 2004 23:41
by Þórður Helgason
Þetta hjól hét BMW R 100 RS, allavegana lengst af.

Ég átti svona í 750cc útgáfunni, árg 73. Algjör snilld. Ég seldi mitt með ca 85 þús km. á mælinum, og vélin var í toppstandi, sem og flest annað en sætið.

Akkúrat svona er stefnan, verði maður á hjóli aftur.

Týpan með hærri rúðunni heitir RT.

Er þetta hjól á Íslandi?

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 06:55
by gunnar
Ekki minn tebolli en ef ég fengi mér eitthvern tíma hjól væri það þá BMW hehe ;)

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 08:25
by Giz
Nei, þrátt fyrir að mikið hafi verið reynt skilur drengurinn bara ekki að Ducati er það eina sem kemur til greina!!!!

Image

En Moto Guzzi gengur svo sem líka :shock:

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 10:27
by Hulda
ekta ferðamannahjól bara cool :D

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 16:36
by bjahja
Ducatti monster.........kostar ekki nema millu nýtt og er flottara en allt :twisted: :twisted:

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 19:31
by bebecar
Þið gleymið því að ÉG er í danmörk og þar kostar nýtt Ducati Monster 3.5 milljónir :wink:

Það er ekki hægt að kaupa neitt annað en svona GAMALT, en ég fíla reyndar þessi gömlu BOXER hjól MJÖG vel... það var svona hjól í einni Pink Panther myndinni 8)

Re: BMW R 100 RS

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 19:32
by bebecar
Þórður Helgason wrote:Þetta hjól hét BMW R 100 RS, allavegana lengst af.

Ég átti svona í 750cc útgáfunni, árg 73. Algjör snilld. Ég seldi mitt með ca 85 þús km. á mælinum, og vélin var í toppstandi, sem og flest annað en sætið.

Akkúrat svona er stefnan, verði maður á hjóli aftur.

Týpan með hærri rúðunni heitir RT.

Er þetta hjól á Íslandi?


Gætir þú sagt mér eitthvað meira frá þessu hjóli :?:

PostPosted: Fri 16. Jul 2004 21:52
by Giz
Kæri Ingvar

Danir eru nú ekki alveg svona skæðir í álagnignunni er það, þetta fann ég sem offisjal söluverð á Monster í DK:



Ducati M620 Dark
Kr. 124.980


Ducati M620
Kr. 138.700


Ducati M800
Kr. 160.996

Ducati M1000
Kr. 181.660

Ducati M1000S
Kr. 197.998

Ducati MS4 R
Kr. 226.499
Alle priser er incl. afgift
med mindre andet er anført.
Der tages forhold for fejl og prisstigninger.

The Ducati Monster family
Introducing the third generation

“What does a biker need to have fun?
Handlebars, an engine, two wheels, and a tank to hold the gas.
The rest, the road takes care of…”
Miguel Galluzzi, Designer of the Monster

Ég veit hinsvegar ekki betur, en vona að þessar 3,5 miljónir hafi verið innsláttarvilla!! Ég er hins vegar kannski soldið mikið Ducati fan en rétt skal nú samt vera rétt

Kveðja

PostPosted: Sat 17. Jul 2004 11:33
by bebecar
Nei - þetta var eftir mínu "súper" minni :wink:

Asskoti er bimminn þá dýr :shock: Hmmm... svona solid fjárfesting :roll:

Þú ert nú meiri kallinn, nú þarf ég alvarlega að spá í Monsterið, ég reyndar get ómögulega sætt mig við 620 og 800 hjólin því þau eru bara of lítið (ekki vélarlega heldur stærðarlega) þetta er eins og að vera á barnahjóli....

Svo fær maður víst 85% af skattinum tilbaka ef maður flytur hjólið úr landi þannig að þetta er kannski ekki svo vitlaust - ef maður á pening fyrir þessu sem ég á ekki fyrr en 911 er seldur :idea:

EKKI DUCATTI

PostPosted: Sat 17. Jul 2004 14:27
by Þórir
Ég get ekki annað en ráðlagt þér frá því að kaupa þér Ducatti nema að þig langi alveg rosalega að eyða flestum frístundum og/eða peningum í að gera við eða láta gera við.

Þú munnt kynnast nýjum heimi varðandi viðgerðir á Ducatti. Svo get ég ekki annað en minnt fólk á aðrar ítalskar vörur, nefni bara Alfa. Ok, þetta lúkkar eins og ekkert annað, keyri eins og draumur en það er bara ekki nóg þegar þetta bilar svona rosalega.

Ég veit allavegana að BMW, þó að útlitið sé svona ekki eftir hvers manns smekk, þá bilar þetta nánast ekkert og svo er hægt að keyra þetta von úr viti. Annars myndi ég líka skoða það að kaupa sér bara góðan japanskan fák, ódýrir, þægilegir, góðir varðandi bilanatíðni. Sure bet!

Annars bara, kveðja til danaveldis. Bið að heilsa Carslberg vini mínum.

Re: EKKI DUCATTI

PostPosted: Sat 17. Jul 2004 15:53
by Giz
þórir wrote:Ég get ekki annað en ráðlagt þér frá því að kaupa þér Ducatti nema að þig langi alveg rosalega að eyða flestum frístundum og/eða peningum í að gera við eða láta gera við.

Þú munnt kynnast nýjum heimi varðandi viðgerðir á Ducatti. Svo get ég ekki annað en minnt fólk á aðrar ítalskar vörur, nefni bara Alfa. Ok, þetta lúkkar eins og ekkert annað, keyri eins og draumur en það er bara ekki nóg þegar þetta bilar svona rosalega.

Ég veit allavegana að BMW, þó að útlitið sé svona ekki eftir hvers manns smekk, þá bilar þetta nánast ekkert og svo er hægt að keyra þetta von úr viti. Annars myndi ég líka skoða það að kaupa sér bara góðan japanskan fák, ódýrir, þægilegir, góðir varðandi bilanatíðni. Sure bet!

Annars bara, kveðja til danaveldis. Bið að heilsa Carslberg vini mínum.


Jæja, nú verður aðeins að leggja orð í belg, kannski að verða Off Topic??

#1 Það heitir DUCATI ekki Ducatti
#2 DUCATI kaupir þú með hjartanu og þau þurfa að sjálfsögðu alúð og ummönnun en ef passað er upp á olíuskipti og þess háttar er þetta bara draumur. Má alveg líkja þessum málatilbúnaði hjá Þóri við Toyotu vs. BMW!
#3 Ef menn eru að ráðleggja öðrum varðandi kaup eða ekki kaup á hlutum, væri ágætt að menn færðu rök máli sínu til stuðnings. Reynslu fá menn ekki án þess að hafa átt DUCATI og geta þar af leiðandi varla miðlað af neinu ef eignarhald hefur ekki verið til staðar.
#4 DUCATI var kannski í gamla daga vandræðagripur að vissu leiti en síðan eru liðin mörg ár!
#5 Ég á DUCATI 749 Dark árg. 2004 og það er geðveikt hjól, engin vandamál, bara hamingja og smá bakverkur, enda ekki tvítugur lengur.

Afsakið langlokuna en ég bara varð að svara þessu rugli með langloku :wink:

Á hinn bóginn séð get ég ekki séð að Alfa bili neitt meira en annað, t.d. VW, Audi eða álíka dót og tala ég þar af reynslu þar sem ég var síðastliðið ár á Audi TT og myndi sem dæmi ekki mæla með þeirri bifreið!!

Lifið heil

G

PostPosted: Sat 17. Jul 2004 21:08
by bebecar
Ég er nú reyndar óhræddur við ítalskt, minn Alfa Romeo bilaði aldrei (hjá mér)... Ducati er eftir því sem ég hef lesið mér til mjög traust ásamt Aprilia og Moto Guzzi, allt afskaplega traustir fákar og í þeim blöðum sem ég hef lesið talin endingarbetri en japönsku hjólin.

BMW hjólunum slær hinsvegar ekkert við hvað varðar endingu og litla bilanatíðni, enda er oft sagt að BMW hjól séu mun betri en bílarnir! 8)