steino6 wrote:þessi bíll er hvergi á skrá, hann hefur verið eyðilagður áður en EKJA varð til (forrit með allar upplýsingar um bíla sem hafa eru i lagi frá 99- X )
Hvernig geturu verið viss um það?
Eldri bílarnir eru ekki skráðir í umferðarskrá með 17 stafa verksmiðjunúmeri t.d.
Ég er með lista frá árinu 2003 sem er með 8 bílnúmerum af E24 á Íslandi.
Svo var gerður listi af Sæma hér á kraftinum fyrir mörgum árum sem innihélt fleiri.
Vandamálið með gömlu steðjanúmerin, t.d. eins og á þessum e24 hefur verið Y120 á einhverjum tímapunkti.
Það að fletta upp Y120 í dag, það finnur ekki þennan E24 ef hann var ekki síðasti bíll sem var nokkurn tímann notaður með
því númeri.
Ef það var búið að færa það á annan bíl eftir E24, þá færðu bara uppgefinn þann bíl.
Ef þú veist fastanúmerið snýr dæmið alveg við, þá finnuru auðvitað alltaf bílinn, óháð hversu mörg steðjanúmer hann hefur verið með.