bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E34 RACE-CAR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=62611
Page 1 of 2

Author:  Alpina [ Wed 31. Jul 2013 22:50 ]
Post subject:  E34 RACE-CAR

MEGA project,,,,,,,,,,,, :shock:

Image

http://www.speedhunters.com/2013/07/att ... e-bmw-e34/

Author:  Jón Ragnar [ Thu 01. Aug 2013 09:17 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?

Author:  Omar_ingi [ Thu 01. Aug 2013 12:20 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?


Ég held að það spili svoldið inní að það vantar þá braut/svæði fyrir svona stórar græjur :)

Author:  tinni77 [ Thu 01. Aug 2013 18:05 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

OJJ BARA, þetta er bara FEITT ógeðslegt, felgurnar alltof utarlega og bíllinn allt of lágur!

Author:  Alpina [ Thu 01. Aug 2013 20:08 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?



Er ekki svona teppa fílingur yfir nafninu ??

Author:  Bandit79 [ Tue 06. Aug 2013 23:55 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Alpina wrote:
Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?



Er ekki svona teppa fílingur yfir nafninu ??



Mazhar Iqbal

Image

8)

Nema að hann er í raun og veru YaLLaHaBiBi79... besti BF3 spilari Íslands 8) :thup:

http://battlelog.battlefield.com/bf3/us ... HaBiBi79-/

Author:  íbbi_ [ Tue 06. Aug 2013 23:57 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?


kaupmáttur til dæmis

Author:  fart [ Wed 07. Aug 2013 06:41 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

íbbi_ wrote:
Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?


kaupmáttur til dæmis

Engin braut

Author:  Danni [ Wed 07. Aug 2013 07:39 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

fart wrote:
íbbi_ wrote:
Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?


kaupmáttur til dæmis

Engin braut

Hands down, áhrifaríkasta ástæðan.

Author:  Alpina [ Wed 07. Aug 2013 09:08 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Danni wrote:
fart wrote:
íbbi_ wrote:
Jón Ragnar wrote:
Fáir jafn klikkaðir eins og Svíar og Norðmenn

Afhverju í fjandanum erum við ekki svona kúl?


kaupmáttur til dæmis

Engin braut

Hands down, áhrifaríkasta ástæðan.


Bullshit að mínu mati.......... þeas brautin

það er hægt að fara erlendis og gera og gera ,,, leigja alvöru tæki fyrir brotabrot af kostnaði sem fylgir svona ultra-græju.. kannski endilega ekki drift græju,, en track bilar liggja í hundruðum ef ekki þúsundum eintaka í EU og USA
ready for use

því miður er innkoman og slíkt ekki nóg til að menn séu að gera og gera,,,,,,,,,

ALLT ,,,,, er á slíkum prísum og gjöldum sökum iskr vs aðrir gjaldmiðlar að fyrir landann er þetta feyki erfitt miðað við aðra

Author:  fart [ Wed 07. Aug 2013 12:24 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Ok..

þannig að það er bullshit að ástæðan fyrir því að það eru engir kappakstursbílar á Íslandi sé sú að það er engin kappakstursbraut?? :lol:

Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að ef það væri hægt að keyra svona græjur einhverstaðar á Íslandi, þá væru þessar græjur til, og menn væru að gera og græja út um allt land.

Sjáðu bara torfæruna. Ef það væri ekki einn einasti hóll á Íslandi væru menn ekki að græja þessa bíla. Kostnaðurinn hefur ekki staðið neit rosalega í vegi fyrir ævintýranlega dýrum græjum.
Sjáðu jeppakúltúrinn. Ef það væru ekki fjöll eða jöklar á Íslandi væru menn ekki að græja bíla í það. Menn hafa verið óhræddir við að finna hreinlega upp hjólið þar með ærlegum tilkostnaði og unnið sér jafnvel inn orðstýr erlendis.

Af sama skapi sér maður ekki marga 44" breytta bíla hérna á meginlandinu. Aðallega vegna þess að það er engin aðstaða til aðkeyra þá.


Ástæða þess að keppnisgræjur eru til í þúsundatali erlendis er einfaldlega sú að þar er aðstaða.
Kaupmáttur Íslendinga hefur í gegnum árin verið frábær, ef menn eru að bera saman kostnað við innflutning á bílum ættu þeir að undra sig á því hvernig Norðmenn geta verið með þeim færustu í breytingum og tjúni. Þar kosta hlutirnir sitt og tollar á bíla eru stjarnfræðilegir.

Author:  Danni [ Wed 07. Aug 2013 16:36 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Það er kvartmílubraut hér. Þar af leiðandi eru fullt af heimasmíðuðum mjög impressive kvartmílutækjum.

Kaupmáttur hefur eflaust mikið að segja núna, og eins og Sveinbjörn nefnir þá gengið mjög óhagstætt núna.

En það eru ekki mörg ár síðan gengið var hagstætt og það var töluvert minna mál fyrir menn að græja hluti erlendis frá fyrir viðráðanlegt verð. Á þeim árum poppuðu upp þessi massívu kvartmílutæki hér og þar.

Ef kaupmáttur og gengi er svo sannarlega stærsta ástæðan, og að vöntun á braut hér er bara bullshit, hvers vegna poppaðu þá ekki upp fullt af track bílum hérna líka þegar kaupmátturinn var meiri og gengið hagstætt?

Þeir fáu sem urðu til af Íslendingum voru smíðaðir erlendis og notaðir erlendis.

Það var enginn að tala um að það sé hægt að leigja brautarbíla fyrir brautarakstur erlendis, það kemur málinu akkurat ekkert við.

Ef það væri til almennileg braut hér á landi, væru til almennilegir brautabílar hér á landi.

Author:  íbbi_ [ Wed 07. Aug 2013 16:57 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

það er bara engin ein ástæða fyrir þessu, heldur samverkandi þáttur margra atriða.

auðvitað spilar brautarleysi inn í. ég veit ekki af hverju menn ættu að vera smíða sérhæfðar keppnisgræjur fyrir aðstæður sem eru ekki til. annað er svo að menn sníða sér oft stakk eftir vexti og hér höfum við fjöll. snjó. frost og vont veður. eins og sést á að langsamlega mest af íslensku bíla hugviti hefur farið í akkurat það. bíla sem hægt er að keyra yfir jöka, fjöll og fyrnindi í veðrum sem maður yrði úti í ef það væri ekki fyrir jeppan.

sumt mótorsport hefur náð fótfestu hérna. spyrnur eiga sér lengri sögur en flest annað mótorspport hérna, menn hittust og voru að spyrna í kollafirði og flr stöðum áður en kvartmílubrautin varð til. þá var þetta einfaldlega tíðarandinn,

auðvitað spilar kaupmáttur inn í. eftir hrunið fór bílasportið hér á landi úr því að vera fáránlega dýrt yfir í að vera komið út fyrir öll velsælis mörk, og ekkert óeðlilegt við að menn dragi í land. margt er bara einfaldlega orðið það dýrt að menn geta ekki með neinu móti réttlætt það.

Author:  gstuning [ Wed 07. Aug 2013 17:59 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Menn gleyma rekstrinum við svona græjur, ef um eitthvað annað enn 5 track days á ári þá fer þetta að telja almennilega.

Ég myndi segja að kaupmáttur í Noregi og Svíþjóð er alveg töluvert yfir því sem finnst á Íslandi fyrir samskonar störf. Flestir þessara stráka eru bara iðnaðarmenn/strákar og eiga hús, daily og svo að smíða heavy leikfang. Á Íslandi eru mjög fáir sem eiga íbúð/hús OG eru að modda bílinn sinn þótt lítið sé. Flestir sem enn eru að modda búa hjá foreldrum eða stunda vafasöm viðskipti (flestir, alls ekki allir).

Mér finnst alltaf þessi umræða vera þannig að EF það væri segjum "bara" 3km braut hérna þá myndu allir hoppa til.
Ég leyfi mér að efast um hversu margir myndu fjölmenna á það svæði þegar dagurinn kostar kannski 30-50k. Svo þarf bensín sem fer óspart þegar maður loksins kemst á braut hvað þá racebensín sem kostar betri leiðina í 800kr líterinn kannski, þannig að fylla einn lítinn E30 myndi kosta 44000kr. 0.3Liter/km cirka. 0.9L per hring. 60 hringir og tankurinn er búinn.

Tryggingar ofan á það
Þannig að ég get séð það kosta ekki minna enn 60-70k dagurinn. Eru allir jafn spenntir??
Það virðist vera nógu erfitt fyrir þessa kappa til að eyða nokkrum þúsurum á akstursbrautinni í smá fjör.
5 track days og þetta er komið í 350kall fyrir utan allt annað viðhald eða viðgerðir, hvað þá að smíða tækið.

Author:  Alpina [ Wed 07. Aug 2013 21:36 ]
Post subject:  Re: E34 RACE-CAR

Bara ánægður með þetta svar hjá þér Gst........ :thup:

Akkúrat það sem ég er að meina

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/