'56 BMW 501 á skoðunardegi Fornbílaklúbbsins.
Það var eldri kona sem mætti á þessum bíl á skoðunardag Fornbíla sem var frá 9-15 í dag. Mikið af flottum bílum sem mættu en þessi fannst mér toppurinn!

Núverandi eigandi eignast bílinn 1976 og er eini skráði eigandi bílsins. Ökutækjaskrá í dag er samt ekki með gögn á bílum svona langt aftur í tímann. Til dæmis virðist sem þessi bíll hafi ekki farið í skoðun síðan 1975/1976. Í rúðunni er skoðunarmiði sem gildir 1976 og í skránni er engin færsla um skoðun ennþá, þannig það eru allar líkur á að hann hafi ekki farið í skoðun síðan '75/76.
Það er gaman að sjá hvaða gersemar leynast í skúrum fólks á Íslandi! Fær mann til að hugsa hvað meira er til hérna á klakanum.