Page 1 of 1

Vantar álit

PostPosted: Sun 25. Apr 2004 18:56
by Bjarkih
Nú er maður farinn að skoða markaðinn, hvað finnst ykkur um verðið á þessum?
http://www.bytbil.com/index.cgi?tips=61BB88A9410154
Image
Image

PostPosted: Sun 25. Apr 2004 19:55
by Kristjan
Þú ætlar væntanlega að vera á þessum útí svíþjóð, ekki satt?

Hvers vegna dísel?

Ætti maður að fara skoða markaðinn í Svíþjóð? Kostar meira eða minna að senda bíl þaðan til Íslands en frá Þýskalandi?

PostPosted: Sun 25. Apr 2004 20:21
by Bjarkih
Já ég er að skoða bíl til að vera á úti. Það er ódýrara að keyra um á dísel, munar ca. 25-30 IKR á líter.
Varðandi flutning þá myndi ég bara taka Norrænu.

PostPosted: Mon 26. Apr 2004 10:02
by jonthor
Dísel er virkilega gott mál. Langflestir BMW-ar sem ég sé hér eru Dísel.

PostPosted: Sat 01. May 2004 04:27
by Chrome
ég hef nú verið soldið á Dísel benz og ég verð að segja að það er ekkert nema þægindi þetta eyðir engu :D

PostPosted: Sun 02. May 2004 15:34
by Kristjan
Ég sat í BMW E39 530d í taxa á föstudaginn.. djöfull var það rosalega smooth bíll.. heyrðist ekki múkk í vélinni inní bílnum og krafturinn alveg mjög fínn.