bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Vitið þið eitthvað um þennan
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=4696
Page 1 of 1

Author:  Jói [ Tue 24. Feb 2004 15:30 ]
Post subject:  Vitið þið eitthvað um þennan

Þessi e36 er árgerð 1991 og er ekinn 325 þ km. Sjálfskiptur og hann er á söluskrá sölu hjá Toyota Akureyri meðal annars og einnig á mörgum stöðum í bænum. Ég held þess vegna að bíllinn keyri mikið frá ak til rvk.

Vitið þið eitthvað meira?

Mikið ekinn BMW 318iA '91

Image

Author:  GHR [ Tue 24. Feb 2004 15:42 ]
Post subject: 

Váá aksturinn á þessu :shock:
En virðist looka flott :D

Author:  BMW_Owner [ Thu 26. Feb 2004 19:48 ]
Post subject: 

ekkert vera að treysta á bíla sem eru keyrðir svona mikið betra að fá sér bíl sem er 2-3 árum eldri en minna keyrður(eldralúkkið)

kv.BMW_Owner :burn:

Author:  saemi [ Thu 26. Feb 2004 22:44 ]
Post subject: 

BMW_Owner wrote:
ekkert vera að treysta á bíla sem eru keyrðir svona mikið betra að fá sér bíl sem er 2-3 árum eldri en minna keyrður(eldralúkkið)

kv.BMW_Owner :burn:


Hvað er að bíl sem er mikið ekinn????

Það skiptir ekki öllu máli. Ég myndi ekkert frekar taka eldri bíl keyrðan minna. Akstur skemmir ekki bíl, en það gerir hins vegar of lítill akstur og lélegt viðhald eða ekkert :wink:

Author:  BMW_Owner [ Fri 27. Feb 2004 16:40 ]
Post subject: 

það er ekkert viðhald á bíl sem er ekkert ekinn....afi minn á benz sem er 1994 model keyrðan sko næstum ekkert og aldrei hefur hann einu sinni þurft að skipta um ljósaperu!! það sem ég er að segja að það er ekki beint verra að hafa bíl mikinn keyrðann en þegar hann er mikið keyrður þá veit maður ekkert hvort það hafi verið langkeyrsla,innanbæjarkeyrsla eða vott ever,þegar bílar eru keyrðir mikið þá þýðir það bara slit og vesen og ég myndi ekki keupa þannig bíl nema að allar kvittanir fylgdi með um viðgerðir og ef sumt er farið að hrynja og við vitum nú allir að það er of ódýrt að gera við BMW :roll:

kv.BMW_Owner :burn:

Author:  Benzer [ Fri 27. Feb 2004 18:54 ]
Post subject: 

Það er þannig þegar bílar eru Mikið keyrðir þá er kannski búið að endurnýja allveg fullt af hlutum...Þannig að það er svo sem ágætt líka :)

Author:  BMW_Owner [ Sat 28. Feb 2004 11:59 ]
Post subject: 

Reyndar en eins og ég sagði hér áður myndi ég vilja sjá allar kvittanir og soles :wink:

kv.BMW_Owner :burn:

Author:  saemi [ Sat 28. Feb 2004 12:48 ]
Post subject: 

Bíll sem er ekki ekið reglulega, hann skemmist!

Það þorna pakkdósir, ventlaþéttingar, bremsudiskar ryðga, raki kemst í rafkerfi ofl ofl.

Ég er ekki að segja að hann verði ónýtur, það koma bara í hann böggar sem maður losnar við í bíl sem er ekið reglulega.

Author:  Þórir [ Sat 28. Feb 2004 16:56 ]
Post subject:  Enginn akstur

Svo má líka bæta því við að það hafa ófáir lent í því að kaup sk. gullmola, jafnvel af gömlu fólki, nánast ekkert keyrða bíla og um leið og tekið er á þeim fer eitthvað! Þannig að akstur er ekkert endilega verri, ef viðhaldið hefur verið gott.

Þetta er nákvæmlega eins og þegar einhver er að reyna að selja þér bíl og segir: "það hefur bara ekkert verið gert fyrir hann í tvö ár, bara alveg bilanafrír" þá myndi mér ekki þykja það neitt sérstaklega gott.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/