Page 1 of 2

BMW 530d GT

PostPosted: Sat 19. Dec 2009 23:27
by HAMAR
Image
Image
Image
Image

Mér finnst hann eins og lækkaður X6
Hann er nú samt stærri að innan held ég alveg örugglega.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sat 19. Dec 2009 23:40
by SteiniDJ
[Svört Kona]: mmm-MM! Þessir bílar eru örugglega awesome, væri alveg til í að rúlla á þessu í kringum heiminn.

Aðrar felgur og þá er hann alveg tip top.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sat 19. Dec 2009 23:48
by Giz
Það er bara ein leið til að þola þetta, og sú er að vera inni og keyra sjálfur!

Hef sén innan og utan, hef keyrt, og það er fínt, bæði dísel og 550i osfr, en agalega dull samt. Og svo afskaplega ljótt!

G

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 00:04
by Dr. Stock
Við skulum hafa eitt á hreinu: Þessi bíll er EKKI ljótur!!! Það er bara þannig!!!! Ekki orð um það meir.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 00:12
by SteiniDJ
Dr. Stock wrote:Við skulum hafa eitt á hreinu: Þessi bíll er EKKI ljótur!!! Það er bara þannig!!!! Ekki orð um það meir.


Ég hef það á tilfinningunni að þau verða ófá orðin um útlit bílsins. :) En ég er sammála þér, mér finnst bíllinn ekki ljótur.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 00:39
by Dr. Stock
Rétt, sjálfsagt ekki allir sammála mér. En það er rétt að þessum bíl svipar mjög til X6 og er í raun svipaður lækkuðum X6. Það er bara svo að menn eru að svekkja sig á stórum nýrum eins og í nýju 7unni en svo éta menn það ofan í sig þegar þeir sjá bílinn í nálægð en þann bíl hef ég séð og hann samsvarar sér afar vel. Munum vel að mörgum fannst E60 og jafnvel E90 ljótir á sinum tíma, það fer lítið fyrir þeim skoðunum nú. Þeir bílar hafa orðið fyrirmynd margra, m.a Audi sem hefur eftirapað lúkkið á þeim bílum ansi hraustlega. Löngu klassískt lúkk.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 00:47
by bimmer
Afturendinn á þessum bíl er svo ljótur að mig langar helst að gráta.....

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 00:49
by Alpina
bimmer wrote:Afturendinn á þessum bíl er svo ljótur að mig langar helst að gráta.....


gerðu það þá bara :mrgreen:

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 01:00
by MR.BOOM
Ef þessi væri frá öðrum bílaframleiðanda þá væru allir í flogi yfir því hversu ljótur hann væri...........

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 01:11
by Alpina
MR.BOOM wrote:Ef þessi væri frá öðrum bílaframleiðanda þá væru allir í flogi yfir því hversu ljótur hann væri...........


BARA COOL bíll :thup:

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 02:12
by Dr. Stock
Afturendinn er mjög flottur og opnunin á skottinu bara snilld!!! Það er reyndar afar gott að geta grátið. Mann á ekki að langa til að gráta, maður á bara að gráta og þá líður manni betur á eftir!!! Bíllinn er mjög cooooool !

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 06:47
by Mazi!
úff


þessi bíll minnir mig bara á eitthvað amrískt nýtt fjós, þetta er hræðilegt



finnst þetta álíka ljótt og toyota prius

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 09:33
by Giz
Gaman væri að vita hvort fólki sem finnst þessi bíll ljótur/flottur etc. hafi í reynd séð bílinn?

Ég hef þó séð hann og keyrt, og keyra fínt, en dull, að sjá hræðilegt, jafnvel hræðilegra en X6, sem er ansi erfitt IMO.

G

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 10:05
by fart
Giz wrote:Gaman væri að vita hvort fólki sem finnst þessi bíll ljótur/flottur etc. hafi í reynd séð bílinn?

Ég hef þó séð hann og keyrt, og keyra fínt, en dull, að sjá hræðilegt, jafnvel hræðilegra en X6, sem er ansi erfitt IMO.

G

Old-fat-guy BMW.. GT og X6.. þó finnst mér vel sorted X6 ágætur, en kemst bara ekki yfir það hversu pointless hann er.. Hver vill eiga SUV án SUV plássins.

Nokkrir X6 á ferðinni hérna, og GT til sýnis í umboðinu, sá hann síðast í gær.

Re: BMW 530d GT

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 14:55
by ömmudriver
Ég hef nú séð nýju sjöuna(F01) og mér finnst hún alls ekki samsvara sér!!

Framendinn er ekkert nema nýru og ég sé bara Infiniti bíl þegar ég horfi á afturendan, bara sori takk fyrir :thdown:
Svo má vel vera að nýja sjöan komi betur út í öðrum lit og á öðrum felgum en þessi tiltekna sjöa sem ég sá daglega og oftar en tvisvar á hverjum degi var dökkgrá á 20" DTM style felgum :puker:


En aftur á móti finnst mér þessi GT bíll koma MUN betur út og samsvara sér betur en F01 og opnunin á afturhleranum er ekkert nema snilld :thup: