Page 1 of 5

OMG 740i beinskiptur???

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 20:44
by iar
10 mín eftir as we speak:

http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... gory=15318

Hef aldrei heyrt um 740i E38 beinskipta.. ætli þetta sé eitthvað mix?

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 20:48
by Jss
Man ekki eftir að hafa séð E38 740 beinskiptan en það ætti svosem ekki að vera flókið þar sem þetta er náttúrulega sama vél og í E39 540 sem er fáanlegur bsk tékka á þessu á morgun í vinnunni í EPC. :D

Fallegur bíll en mikið ekinn.

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 20:58
by bebecar
Ég hef séð myndir af nokkrum 740 bsk - mér finnst það ALL VERULEGA SVALT!

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 20:59
by bjahja
Já maður.........beinskiptar sjöur eru svalar 8)

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 21:21
by Logi
BMW hefur einmitt stært sig af því að bjóða upp á kraftmikla stóra bíla Beinskipta. Og leggja þar með áherslu á sportlega eiginleika, annað en t.d. Mercedes......

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 21:46
by Jökull
M5 inn með PS númerið er beinskiptur þannig að það hljóta að vera fleiri bsk með stórri vél :) .Annars er Bens með lélegar beinskiptingar allavegana þeir bílar sem ég hef prufað.

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 21:59
by Kull
Jökull wrote:M5 inn með PS númerið er beinskiptur þannig að það hljóta að vera fleiri bsk með stórri vél :) .Annars er Bens með lélegar beinskiptingar allavegana þeir bílar sem ég hef prufað.


Allir M5 eru beinskiptir.

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 22:16
by bebecar
ENNÞÁ eru allir M5 beinskiptir og hafa alltaf verið. EN það styttist nú örugglega í slush box, var ekki Z8 með M5 vélinni seldur ssk í USA ?

Annars hljóta þeir að koma með SMG í M5... vá fullt af skammstöfunum!

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 22:22
by Kull
Jamm, mjög líklegt að það verði boðið uppá SMG í næsta M5. Mikið af könum sem kunna ekki að hreyfa gírstöng...

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 22:25
by iar
Kull wrote:Jamm, mjög líklegt að það verði boðið uppá SMG í næsta M5. Mikið af könum sem kunna ekki að hreyfa gírstöng...


SMG er líka ansi sniðugt og mun örugglega vera option í M5, er t.d. þegar komið í M3.

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 22:31
by bjahja
SMG sleppur.......svo lengi sem þeir gera hann ekki bara alveg ssk

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 23:17
by Jss
bebecar wrote:ENNÞÁ eru allir M5 beinskiptir og hafa alltaf verið. EN það styttist nú örugglega í slush box, var ekki Z8 með M5 vélinni seldur ssk í USA ?

Annars hljóta þeir að koma með SMG í M5... vá fullt af skammstöfunum!


Alpina framleiddu útgáfu af Z8 ssk, BMW gerðu það ekki sjálfir.

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 23:22
by bebecar
Það var nefnilega deilt um það. Þetta var fyrsti bíllinn sem Alpina seldi sem var ekki smíðaður af Alpina - þetta var bara venjulegur Z8 með Alpina felgum, röndum í sætum og ssk. Ekkert tjún :wink: Meiri BMW en Alpina if you ask me :?

PostPosted: Thu 11. Dec 2003 23:25
by Jss
Sá bíll var með 4,6 lítra Alpina vélinni ef ég man rétt, nenni ekki að fletta því upp núna, en finnst samt eins og þeir hafi jafnvel líka boðið uppá hann með M5 vélinni.

PostPosted: Fri 12. Dec 2003 08:47
by Raggi M5
Er ekki nýjasti M5 bílinn með eikkað SMG dæmi, mynnir að ég hafi lesið það í einhverju DV-bílar blaðinu...??