Page 1 of 4

Fært: BMW 325i blæju

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 14:41
by bjahja
Plís, einhver kaupa þennan bíl og taka af honum spoilerinn :evil:
325i

En var þessi bíll ekki á sölu fyrir 1,2 einhverntíman?????? minnir það endilega, spáði aðeins í honum þegar ég var að leita, en ég er með minni á við besta gúbbí fisk þannig að það er alls ekki víst :wink:

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 14:57
by Jss
Þetta er soldið of hátt verð, þetta er hærra verð en gaurinn keypti hann á og síðan þarf náttúrulega að draga af verðinu fyrir að þurfa að keyra á honum heim með spoilerinn á til að rífa hann af og brenna hann (spoilerinn). Var einmitt líka að spá í þessum bíl fyrir rúmu ári. Ekki ánægður hvernig búið er að fara með bílinn (spoilerkittið) :evil:

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:16
by BMWaff
Þetter frekar gæjalegur bíll! Er oft hérna fyrir utan vinnuna hjá mér. En alveg rétt, hvað er BMW að gera með Alfa spoiler!? Alveg!"#$%/

Annars finnst mér þetta frekar mikið verð, en hann er ekkert ekin voða mikið...

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:19
by bebecar
Er þetta ekki bíllinn sem er ósprautaður að inna og var einhvernvegin rústrauður áður?

Sá bíll var stórglæsilegur og sá ekki á honum. Þessi vængur á þessu er hlægilegur, sérstaklega á blæjubíl! Nema náttúrulega að þetta sé "integral rollbar" :wink:

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:19
by bjahja
Þessi bíll var nefninlega mjög smekklegur......flott kitt og svona en núna er hann kominn með þennan alfa spoiler og innkaupalistann á hurðina #-o

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:20
by bjahja
bebecar wrote:Er þetta ekki bíllinn sem er ósprautaður að inna og var einhvernvegin rústrauður áður?

Sá bíll var stórglæsilegur og sá ekki á honum. Þessi vængur á þessu er hlægilegur, sérstaklega á blæjubíl! Nema náttúrulega að þetta sé "integral rollbar" :wink:

Jú það passar, vélarrýmið er rústrautt :wink:

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:22
by bebecar
Algjör synd - og verðið auðvitað alltof hátt, er þetta ekki tjónabíll - eða var hann sprautaður af öðrum ástæðum?

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:25
by oskard
ég held að hann sé ´buinn að sprauta húddið og skottið, en það
er enþá hægt að sjá í þennan rauða/brúna lit þegar blæjan
er niðri og maður kíkir undir ...

töff bíll, fyndinn spoiler

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:25
by bebecar
Vitið þið afhverju hann var sprautaður?

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:33
by hlynurst
Uss... svolítið dýr. Spurning hvað maður ætti að setja á sinn bara. :roll:

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:36
by arnib
hlynurst wrote:Uss... svolítið dýr. Spurning hvað maður ætti að setja á sinn bara. :roll:


2.350.000 kr,-

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:40
by BMWaff
Blæjan hjá BMW er alltaf dýr. Veit reyndar ekki akkuru, en mér finnst persónulega ekki flottir svona blæju bílar, nema þegar blæjan er niðri........og það gerist nú ekki oft hérna á klakanum ;)

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:45
by bjahja
BMWaff wrote:Blæjan hjá BMW er alltaf dýr. Veit reyndar ekki akkuru, en mér finnst persónulega ekki flottir svona blæju bílar, nema þegar blæjan er niðri........og það gerist nú ekki oft hérna á klakanum ;)

Mér finnst þeir samt hörkutöff með hardtop

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:47
by bebecar
Mér finnst þetta einn af fáum bílum sem lítur vel út hvort sem blæjan er uppi eða niðri - en með þessum spoiler er hann bara asnalegur... Minnir á sporvagn, kannski þetta sé rafmagnsbíll og spoilerinn sé notaður til að taka rafmagn úr loftlínum.....

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 15:57
by hlynurst
arnib wrote:2.350.000 kr,-


Góður. :P

En persónulega finnst með blæjan mjög flott! Myndi samt aldrei taka svona bíl nema með hardtop.