
Posted:
Sat 08. Nov 2003 15:08
by BMWaff
Nei, en lítur út fyrir að vera ágætur...

Posted:
Sat 08. Nov 2003 15:15
by Kristjan
Maður ætti kannski að fara fjárfesta...

Posted:
Sat 08. Nov 2003 15:17
by iar
Mér finnst nú afturfelgurnar fara honum betur en framfelgurnar.


Posted:
Sat 08. Nov 2003 16:00
by Gunni
Ég kannast við hann... kaupann? NEY
Hann er illa viðgerður eftir tjón, rúðan bílstjóramegin er biluð þannig að það vindgnuðar geðveikt mikið og bensíngjöfin festist í botni þegar ég vara að keyrann!

Posted:
Sat 08. Nov 2003 16:02
by Haffi
lol holy fuck benzíngjöf festast í botni.... gg


Posted:
Sun 09. Nov 2003 09:56
by fart
HEY!!! þetta er bíllinn sem ég flutti inn!!
Loksins sé ég myndir af honum, ég seldi hann 1998 og þá var hann bjútífúl, síðan sá ég hann aftur síðasta sumar og þá var hann ekki síðri. En samkvæmt þessum myndum lítur hann út fyrir að vera farin að sjúskast aðeins.
BTW þegar ég seldi hann, þá var hann með Momo Stýri (svart, silfur, leður og rúgskinn), og Momo Gírhnúð. Það virðist vera farið.
Hann kom til landsins tjónaður, og ég keypti varahluti í B&L fyri rúman 500þúsund kall, það var gert við hann á réttíngaverkstæði Bjarna (hörkuverkstæði, og hann var perfect hjá þeim). Síðan var hann heilmálaður.
annar aukabúnaður var lækkunarsett, bilsten demparar, Eibach strut brace að framan, Kn cone filter, AC-Schnitzer aftasti kútur (sound eins og það á að vera).
I miss that car...
OG EF hann er illa við gerður eftir tjón, þá hefur hann lent í tjóni aftur eftir að ég seldi hann. Það var skipt um allt (já ég meina allt) að framan. Innribretti, ytri bretti, grill, vatnskassa, húdd, ljós, spyrnur, stuðarann eins og hann leggur sig O.S.FRV. Hann var í réttingabekk í langan tíma þangað til að þeir náðu honum upp á millimeter. Þannig að ég fullyrði að bíllinn var fullkomin þegar ég seldi hann.

Posted:
Sun 09. Nov 2003 10:03
by fart
ég ætti kanski að finna einhverjar myndir af honum og pósta hérna, myndir þegar hann var í viðgerð og eftir viðgerð.

Posted:
Sun 09. Nov 2003 13:08
by Djofullinn
Fart, hvað er númerið á þessum bíl? Getur ekki einhver athugað hvort hann hafi verið í eigu tryggingafélags?

Posted:
Sun 09. Nov 2003 13:30
by fart
man ekki alveg númerið, Yu-438 minnir mig.

Posted:
Sun 09. Nov 2003 17:09
by joipalli
Bensíngjöfin getur fests einungis undan illa staðsettum mottum... Hef lent í því.
Það er mjög scary!!

Posted:
Mon 10. Nov 2003 09:15
by bebecar
Ég hef tvisvar lennt í því að festa bensíngjöf vegna mottu! Einu sinni á fullri gjöf upp Hverfisgötuna

mundi sem betur fer eftir því að ökukennarinn hafði sagt mér að ef þetta myndi gerast ætti ég að sparka í bensíngjöfina - það VIRKAÐI!

Posted:
Mon 10. Nov 2003 09:39
by Jss
bebecar wrote:Ég hef tvisvar lennt í því að festa bensíngjöf vegna mottu! Einu sinni á fullri gjöf upp Hverfisgötuna

mundi sem betur fer eftir því að ökukennarinn hafði sagt mér að ef þetta myndi gerast ætti ég að sparka í bensíngjöfina - það VIRKAÐI!
Á hvaða bíl var þetta, ekki M5

þá væri hraðinn orðinn "ágætur"

Posted:
Mon 10. Nov 2003 09:50
by bebecar
Hehe, nei - þetta var Mazda 626 1985 módel (nýr).