Page 1 of 2

Sætur e30

PostPosted: Tue 04. Nov 2003 23:45
by oskard
Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Tue 04. Nov 2003 23:49
by arnib
Flottar breiðar BBS felgur (16x9 að framan, og 16x11 að aftan held ég),
m-tech II kit og mér sýnist M20 með multi-throttle..

Þetta ER hinn fullkomni E30 :)

PostPosted: Tue 04. Nov 2003 23:56
by oskard
bara eitt sem ég mundi breyta og það er að hafa 8" felgur að framan
og 9.5" breiðar að aftan. annars fuuulllkommmiinnnn :D :D :D

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 08:51
by bebecar
Fallegur bíll fyrir utan alltof stórar felgur, þetta minnir mig á dótabílana þegar maður var lítill og dekkin voru farin að skríða útundan öðru hvor megin. Ég býst alltaf hálfpartinn við að sjá dekkið langt inní brettinu hinum megin fyrst það stendur lang útundan því öðru megin.

Ég kemst bara ekki yfir það hvað þetta er asnalegt - til hvers haldið þið að brettin séu á bílnum???

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 09:09
by gstuning
Mér finnst þetta alveg geðveikt kúl

Brettin eru bara þarna, hverjum er ekki sama hvað þau gera, þessi bíll keyrir ekki í slappi og snjó bara þurt og hreint malbik,

Vélin og allt í húddinu glæsilegt, kitið klikkað
og allt lækkað í jörðina,

eins og pura german style bíll á að vera

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 09:23
by Jss
oskard wrote:bara eitt sem ég mundi breyta og það er að hafa 8" felgur að framan
og 9.5" breiðar að aftan. annars fuuulllkommmiinnnn :D :D :D


Geðveikur bíll, sammála með breiddina á felgunum, mættu vera mjórri og þá í þeim stærðum sem þú segir.

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 10:18
by bebecar
Afhverju þá ekki að láta spolierana ná út fyrir hliðar bílsins og fá sér lengri spegla. Þetta er bara asnalegt finnst mér. Þetta er svo hrikalega hégómlegt og þjónar engum praktískum tilgangi.

Eina ástæðan er semsagt, vegna þess að það er flott???

En að öðru leiti er bíllin auðvitað nokkuð flottur.

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 10:20
by Logi
Já takk, ég skal alveg taka þennan. Nánast fullkominn fyrir utan felgurnar. Það má alltaf losa sig við þær...

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 10:22
by bebecar
Felgurnar eru reyndar krómaðar sem ég fíla ekki, en annars eru þetta náttúrulega flottar felgur eins og á þínum, en þær eru bara ALLTOF stórar á þennan bíl sem sést best á því að þær standa út úr brettunum!

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 10:45
by GHR
Úff, þetta er sko hinn fullkomni E30 :shock:
Bilaðslega fallegur

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 11:11
by Jss
Hérna er síðan annar, reyndar ekki nærri því jafn mikið breyttur og ætti því að falla betur að smekk Bebecar, mjög smooth bíll:


Image
Image
Image
Image
Image

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 11:16
by Jss
Geri nú ráð fyrir því að þetta sé bíllinn sem oskard póstaði upprunalega, ekkert smá hvað dekkin standa útundan

Image

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 11:23
by bebecar
Mér finnst þessi ansi flottur en dekkin eru samt örlítið of mikið útstæð, svo er ég ekki að fíla þenna mono þurrkuarm....

Ég bara get ekki að því gert, ég sé EKKERT nema dekkin og felgurnar þegar þetta er svona ýkt. Þetta minnir mig bara á El Camino og vantar bara kúbverja undir stýrið!

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 11:30
by Jss
bebecar wrote:Mér finnst þessi ansi flottur en dekkin eru samt örlítið of mikið útstæð, svo er ég ekki að fíla þenna mono þurrkuarm....

Ég bara get ekki að því gert, ég sé EKKERT nema dekkin og felgurnar þegar þetta er svona ýkt. Þetta minnir mig bara á El Camino og vantar bara kúbverja undir stýrið!


Hefurðu eitthvað á móti Kúbverjum á El Camino?

Neinei segi svona, skil hvað þú meinar. Finnst reyndar sjálfum flottara þegar dekkin hverfa aðeins uppí hjólskálarnar :wink: :D

PostPosted: Wed 05. Nov 2003 11:35
by gstuning
Hverjum finnst það sem þeim finnst,

Ekki væri nú amalegt ef öllum í klúbbnum myndi finnast það sama, það væri ekki til spennandi umræða

Ég er mjög fylgjandi "German STYLE" dæminu, svo er enginn tilgangur í þessu að hafa þetta svona nema að því að þetta er flott,

Og auðvitað engin praktík, það er ekki heldur praktík að eiga B7 sem daily driver, of verðmætur til að hleypa í föstudagsumferðina á íslandi