bragi1 wrote:Kórea er það eina sem mér dettur í hug.
Haha. Verð að taka undir þetta. Finnst nýju bimmarnir oft vera svolítið kóreulegir eða of venjulegir einhvern veginn. T.d. finnst mér nýji þristurinn (samt ekki coupe-inn, hann er flottur) vera allt of venjulegur. Hann er nákvæmlega eins og allir hinir bílarnir á götunni. Og þeir sem ég þekki en eru ekki forfallnir BMW aðdáendur segja það sama, að BMW bílarnir séu orðnir of venjulegir. Það vantar þetta einkennandi útlit sem gömlu bílarnir höfðu til dæmis. Reyndar finnst mér þetta aðallega eiga við um þristinn í 4 dyra útgáfunni. Afturendinn gæti til dæmis verið tekinn af Hyundai.
Nú fær maður líklegast að heyra það.
