Page 1 of 2
Óvenjuleg mynd af BMW.

Posted:
Wed 22. Oct 2003 09:42
by bebecar
Það er algengt að maður sjái BMW fara yfir lækjarsprænnu - ég verð þó að segja að hann tekur sig bara vel út!

Posted:
Wed 22. Oct 2003 09:43
by Jss
Tekur sig bara mjög vel út, flott mynd.

Posted:
Wed 22. Oct 2003 09:50
by bebecar
Já og það má bæta því við að þetta er auðvitað tekið hér á Íslandinu góða!

Posted:
Wed 22. Oct 2003 09:59
by Vargur
Ég hef farið á 750 bílnum upp að Surtshelli og gegnum Kaldadal, svo sem ekki eitthvað sem maður á að gera á svona bíl en alveg hægt

, vildi að ég hefði tekið myndir.
Svo fór ég einu sinni upp að Dettifossi sunnan megin (algjör ófæra) á 316 E 30, það var hryllilegt.

Posted:
Wed 22. Oct 2003 14:48
by Moni
Ég meina 750 bíllinn er eins og breyttur jeppi á þessum felgum!

hlýtur að komast allt...
Nei nei, smá grín, hann lýtur mjög vel út, hann væri flottari samt ef þú lækkaðir hann... eða ertu kannski búinn að því?

Posted:
Wed 22. Oct 2003 15:25
by Vargur
Lækkun er á döfinni.
...en hann fer sko ekki út fyrir malbik á 20"unni.

Posted:
Tue 28. Oct 2003 17:24
by Hlynzi
Þetta er nú algjör sliddu jeppi. Why .. útaf því að fólkið sem kaupir hann tímir honum ekkert.

Posted:
Wed 29. Oct 2003 15:20
by Moni
Hlynzi wrote:Þetta er nú algjör sliddu jeppi. Why .. útaf því að fólkið sem kaupir hann tímir honum ekkert.
Þetta er nú enginn jeppi, hvað þá fjalla jeppi, þetta er bara aðeins upphækkaður station-bíll, fínn fyrir fólk á veturna sem nennir ekki að festa sig þegar það kemur einn mjög snjóþungur vetrardagur...
Það er ekkert sem heitir jeppi nema hann sé á allavega hásingu að aftan og með hátt og lágt drif, allt hitt eru slyddujeppar


Posted:
Tue 04. Nov 2003 23:57
by BMW_Owner
Einn bíll sem er helvíti

fallegur það er Toyota Hilux/Double cab með læsingu aftan og framan með hásingu að framan (ekki klava) og breyttur fyrir og er á 38" dekkjum það er almennilegt tæki

.....og auðvitað að ógleymdum kösturunum!
Kv.BMW_Owner E.T

Posted:
Wed 05. Nov 2003 08:48
by bebecar
Varla finnst þér hann fallegur, er hann ekki frekar verklegur?

Posted:
Wed 05. Nov 2003 09:13
by gstuning
Það sem festir menn eru léleg fjórhjóladrif,
Drifið í X5 er eitt fullkomnasta sem er til, auðvitað má ekki taka á því endalaust en það dreifir alltaf aflinu í dekki sem er með gripi,
Sáuð þið fréttirnar í gær, þegar x5-inn var að klifra upp einhverjar brekkur no problem, og dekkin snérust og svo stoppuðu þau og aflið fór í aftur dekkin og hann fór upp,
Og nóg er aflið í þeim bíl 220hö og bilað mikið tog,
Enginn jökla jeppi samt

Posted:
Wed 05. Nov 2003 10:20
by bebecar
Cayenne fellur víst undir þá skilgreiningu að vera alvöru jeppi. Drifgeta þess bíls er víst með ólíkindum.
Já, og það sem festir bílana er samspil af lélegu fjórhjóladrifi og lélegri fjöðrun, Hi lux er t.d. frekar hastur og sú fjöðrun hentar alls ekki vel í ófærur, nema kannski snjó (þekki það ekki).

Posted:
Wed 05. Nov 2003 10:23
by Logi
Það er náttúrulega meðal annars þess vegna sem menn eru að setja loftpúða eða gorma að aftan í Hilux!

Posted:
Wed 05. Nov 2003 10:25
by bebecar
Sko... hlaut að vera.
Range Rover var og er meðal annars frægur fyrir utanvega getu vegna fjöðrunar, sá bíll var bara alltaf með fjögur hjól á jörðinni!

Posted:
Thu 06. Nov 2003 17:50
by íbbi_
oftast er nú miðað við hvort ekta jeppi sé bygður á sjálfstæðari grind,
range rover

getur eflaust rispað á honum toppin í beygju þó svo að öll hjól snerti götuna
