bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hrikalega flott E30 M3 project - S14 turbo
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=31067
Page 1 of 2

Author:  bimmer [ Fri 01. Aug 2008 15:13 ]
Post subject:  Hrikalega flott E30 M3 project - S14 turbo

http://www.s14.net/forums/showthread.php?t=33808;

Author:  arnibjorn [ Fri 01. Aug 2008 15:28 ]
Post subject: 

Djöfull lúkkar þetta vel! :twisted:

Author:  elli [ Fri 01. Aug 2008 15:37 ]
Post subject: 

Shit,
þessi hlýtur að eiga heilt CNC verkstæði.

3D hönnun á hlutum og allt!
Image

Author:  Einarsss [ Fri 01. Aug 2008 15:58 ]
Post subject: 

Er hægt að gera hlutina betur? þetta er bara flott hjá gaurnum

Author:  Alpina [ Fri 01. Aug 2008 17:00 ]
Post subject: 

Áferðin í hlutunum :shock: :shock:

hrjúft... :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: engu líkt

Author:  fart [ Fri 01. Aug 2008 19:04 ]
Post subject: 

Þetta verður varla flottara 8)

Author:  saemi [ Fri 01. Aug 2008 23:00 ]
Post subject: 

Þetta er hrikaleg snyrtilegt!

Ekkert smá flottar suður og frágangur á þessu.

Author:  jens [ Sat 02. Aug 2008 00:34 ]
Post subject: 

Sammála því, þetta er sérstaklega flott.

Author:  gstuning [ Sun 03. Aug 2008 20:40 ]
Post subject: 

Sorglegt.

Að eyða svona miklum tíma og ekki velja rétta tegund af compressor húsi eða afgas húsi, eitthvað sem hefði ekki kostað NEITT aukalega, og hann hefði á engann hátt erfiðar getað gert manifoldið rétt , þ.e aðskilið 1-2 og 3-4.

Image

Hérna er rétt manifold, með wastegate fyrir hvora hlið meira að segja.
Bara vona að menn hlusti á það að þegar kemur að því að túrbóa bílinn sinn að helst nota þessa tækni, hún minnkar lagg og ég held að allir séu sammála því að það SKIPTIR máli

Author:  bimmer [ Sun 03. Aug 2008 23:33 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Sorglegt.

Að eyða svona miklum tíma og ekki velja rétta tegund af compressor húsi eða afgas húsi, eitthvað sem hefði ekki kostað NEITT aukalega


Fyrir okkur sem erum ekki á kafi í turbo pælingum - hvað er rangt
við valið hjá honum og hvað hefði hann átt að fá sér í staðinn?

Author:  Kristjan [ Mon 04. Aug 2008 00:17 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Sorglegt.

Að eyða svona miklum tíma og ekki velja rétta tegund af compressor húsi eða afgas húsi, eitthvað sem hefði ekki kostað NEITT aukalega, og hann hefði á engann hátt erfiðar getað gert manifoldið rétt , þ.e aðskilið 1-2 og 3-4.

Image

Hérna er rétt manifold, með wastegate fyrir hvora hlið meira að segja.
Bara vona að menn hlusti á það að þegar kemur að því að túrbóa bílinn sinn að helst nota þessa tækni, hún minnkar lagg og ég held að allir séu sammála því að það SKIPTIR máli


Eeeehh hvernig getur 6 cyl manifold verið rétt fyrir 4 cyl vél?

Eða er ég að misskilja þig eitthvað?

Author:  Jón Ragnar [ Mon 04. Aug 2008 01:39 ]
Post subject: 

Er myndin ekki af svipuðu manifoldi sem Gunni meinar, en bara svo óhepplilega vildi til að hann fann bara mynd af 6cyl? :)

Author:  gstuning [ Mon 04. Aug 2008 10:55 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
gstuning wrote:
Sorglegt.

Að eyða svona miklum tíma og ekki velja rétta tegund af compressor húsi eða afgas húsi, eitthvað sem hefði ekki kostað NEITT aukalega


Fyrir okkur sem erum ekki á kafi í turbo pælingum - hvað er rangt
við valið hjá honum og hvað hefði hann átt að fá sér í staðinn?


Split pulse. Er þegar púlsarnir af lofti komandi úr vélinni eru aðskildir frá öðrum helmingum af vélinni

Það eru 120gráður á milli þess er loft kemur útúr einum af stimplum vélarinnar, þegar maður er með lélegt manifold þá rekast púlsarnir á hvorn annan inní greininni, þetta gerir að verkum að orkan í púlsinum eyðist við það að rekast á annan púls. Með góðri aðskildri grein þá eru 240gráður á milli þess að púlsar komi út á 6cyl vél(180° á 4cyl)

Tilgangurinn er að nota massann í hverjum púlsi til að koma og rekast á túrbínu spaðann, liggur við kýla þá áfram, ekki bara nota þrýstings fallið yfir túrbínu spaðann til að mynda loftflæði til að snúa þeim af stað.

Þetta gerir það að verkum að ef maður er með túrbínu setup sem gefur boost við segjum 2700rpm og skiptir yfir í stærri túrbínu til að ná fram hærri hámarks hestöflum þá myndast oftast lag. því að massinn í spöðunum er meiri og því efiðara að snúa, einnig verður þrýstingsfallið að vera meira til að ná þeim af stað. Með þessari tækni þá væri hægt að fá boostið enn inná 2700rpm OG meira viðbragð í miðri gjöf.

Þessi mynd var bara til að sýna aðskilnaðinn á grein og lausn við wastegate vandamál, oftast nota menn samt bara eitt sem er tengt á báða helminga, enda lokað þangað nema þegar boost takmarkinun er náð og þá lítið tap.


Compressor húsið.

Nýjasta tækni er Anti Surge housing


Image

Þið sjáið að þarna utan um spaðann er smá ál hringur og fyrir utan hann er stórt op og svo annar ál hringur þar sem að hosa eða sía færi.

Þegar menn eru að fara blása töluvert þá þarf oft stóra compressora, þá getur myndast compressor surge, það er markið á vinstri línunni hérna
Image

Þetta er flæði markið þar sem að compressor hjólið er ekki að snúast nógu hratt til að mynda boost. þannig að loft í raun fer í gegnum hjólið og hoppar svo tilbaka út aftur :shock:
Þetta hús þarna hjálpar svo það gerist ekki það einnig breikkar compressor mapið, sem þýðir hreinlega sama spool, meira max flæði án þess að tapa neinu útaf laggi eða líku

Author:  fart [ Mon 04. Aug 2008 10:59 ]
Post subject: 

Manifoldin mín eru gott dæmi um púlsa sem rekast hver á annan og því koma túrbínurnar seint inn.

Author:  Alpina [ Mon 04. Aug 2008 11:48 ]
Post subject: 

fart wrote:
Manifoldin mín eru gott dæmi um púlsa sem rekast hver á annan og því koma túrbínurnar seint inn.


Með fullri virðingu fyrir flottum bíl og buildt up og allt það hjá þér Sveinn....

en eldgreinarnar hjá þér er með því.... :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: sem ég hef séð

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/