Page 1 of 1

E34 518g

PostPosted: Sat 10. May 2008 00:03
by Los Atlos
Ég rakst á þetta um daginn, 518g. Ég veit að margir ef ekki flestir hér hafa aldrei heirt um þetta afbrigði af BMW áður, þess vegna ætla ég að gera örstuttan pistil til að fræða fólk um þetta viðrini.

Þetta var tilraun BMW til að gera umhverfisvænan bíl, sem tókst, tjah... ekki svo vel. Þeir voru framleiddir frá lok árs 1995 og fram á mitt ár 1996, þess vegna voru einungis voru framleiddir 298 þannig bílar og allir voru þeir með 5 gíra bsk og Touring. Þeir gengu bæði fyrir vengjulegu bensíni og einhverju sem heitir compressd natural gas (etanól???), þegar hann gekk á bensíninu var hann 115 hö og var að eiða 8.6 ltr á hundraðið en á etanólinu var hann einungis 101 hö og var að eiða 5.6 ltr á hundraðið.
Nývirði slíks bíls var þá um 2,5 milljónir íslenskra króna.

Hér er svo eini slíki bíllinn sem að ég fann

Ég vona bara að einhverjir hafa haft gaman af því að lesa þetta.
Góðar stundir.

PostPosted: Sat 10. May 2008 08:57
by iar
Snilld!

Þarna er kominn bíllinn fyrir Sæma umhverfisvæna. :-P

PostPosted: Sat 10. May 2008 10:01
by saemi
Heeiiiii, ég vissi ekki af þessu!

Bara kúl bílar, ég væri alveg til í svona :)

PostPosted: Sat 10. May 2008 12:01
by Hlynzi
http://en.wikipedia.org/wiki/Compressed_natural_gas

Þetta er Metan-gas knúinn bíll.
Skil ekki afhverju menn nýta sér þann kost ekki meira, við eigum allavegana nóg af rusli og hægt að tappa af haugunum.

PostPosted: Sat 10. May 2008 12:43
by Bjarkih
Hlynzi wrote:http://en.wikipedia.org/wiki/Compressed_natural_gas

Þetta er Metan-gas knúinn bíll.
Skil ekki afhverju menn nýta sér þann kost ekki meira, við eigum allavegana nóg af rusli og hægt að tappa af haugunum.


Svo má alltaf fara í fjós :wink:

PostPosted: Sat 10. May 2008 12:48
by Alpina
Bjarkih wrote:
Hlynzi wrote:http://en.wikipedia.org/wiki/Compressed_natural_gas

Þetta er Metan-gas knúinn bíll.
Skil ekki afhverju menn nýta sér þann kost ekki meira, við eigum allavegana nóg af rusli og hægt að tappa af haugunum.


Svo má alltaf fara í fjós :wink:


haha,,

metan er CH4

Í fjósum myndast stundum brennisteinsvetni H2S sem er baneitrað og hefur margri kúnni grandað þannig að ég léti vera að hræra þar .. þannig myndast nefninlega H2S

PostPosted: Sun 11. May 2008 01:45
by Los Atlos
Ég gerði smá villu, það voru framleidd 298 eintök af bílnum en ekki tæp 200 eins og ég sagði fyrst. Ég er búinn að laga þetta.

PostPosted: Sun 11. May 2008 08:36
by Gummco
Los Atlos wrote:Ég gerði smá villu, það voru framleidd 298 eintök af bílnum en ekki tæp 200 eins og ég sagði fyrst. Ég er búinn að laga þetta.
þetta hlytur að vera safngripur seinna meir þó þetta sé eki merkilegasti bíll sem maður hefur séð,en gott framtak hjá BMW,eins og alltaf :)