Page 1 of 2

Með sneggri Bimmum sem ég hef prófað....

PostPosted: Thu 02. Oct 2003 22:23
by bebecar
Prófaði í gær mjög skemmtilegan bimma með hörku fínu viðbragði, 6.2 sekúndur í hundrað og bensíneyðsla aðeins 4.35 lítrar á hundraðið við blandaðan akstur.

Persónulega þá fannst mér þetta með allra skemmtilegustu tækjum sem ég hef prófað frá BMW en þó er þetta "entry level" græja, hjólið leggst mjög vel í beygjur, sérstaklega lipurt og aflið nægilegt (fyrir mig allavega) en eini gallinn var að það var erfitt að halda jöfnum hraða undir 30 kmh.

Ég get ekki beðið eftir því að prófa top end græju frá þeim!

Image

PostPosted: Thu 02. Oct 2003 22:37
by Logi
Hljómar ekki illa, er samt persónulega meira fyrir 100% götuhjól..

Hvernig var þetta hjól annars búið til "fótanna"? Einhverskonar All-Terrain dekk?

PostPosted: Thu 02. Oct 2003 23:17
by bebecar
Já, það var all terrain dekk á þessu en annars mjög basic hjól. Þetta eru sennilega algengustu ferðahjólin sem útlendingar koma með hingað heim.

Ég er líka meira fyrir götuhjól, það er engin spurning. Ég vonast til að geta keypt R80R sem allra fyrst, þau hjól hafa Boxer vélina sem BMW er þekkt fyrir en svo koma K hjólin líka sterklega til greina.

Það eru í raun bara tvö skilyrði hjá mér, þokkalega öflug vél og "bert" hjól...

R80R
Image
K100
Image

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 11:50
by Vargur
Komdu og prófaðu Súkkuna mína ca 3 sec í 100

Image

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:08
by bebecar
hehe.... ég held ég þori nú ekki á svoleiðistæki strax....

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:13
by Vargur
Hæna !!!

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:14
by bebecar
Dúfa :wink:

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:15
by Logi
Dúfan wrote:Hæna !!!

Segir Dúfan.. Eru þið eitthvað skildir :D :lol:

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:24
by Vargur
Enda eru dúfur eru þekktar fyrir hugprýði og hetjuskap, hafa t.d verið notaðar í hernaði til skilaboðasendinga og njósna.

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:28
by bebecar
Já, eða þangað til að Ford SportKa kom til sögunnar.. :lol:

PostPosted: Fri 03. Oct 2003 13:38
by Vargur
Já, en við finnum leið til að sjá við fordinum enda er Bmw með okkur í liði.

PostPosted: Sun 05. Oct 2003 05:21
by íbbi_
dúfan, ég er einmitt búinn að liggja yfir myndum af hjólinu þínu :P

BMW R80 eða whatever.

PostPosted: Sun 05. Oct 2003 14:36
by Þórður Helgason
Ég átti BMW R75/6 árg 1974 í nokkur ár.
Silldartæki, þvílíkur torkari og "limmi". Ég var bíllaus í nokkur sumur, og var bara á hjólinu. Frábær tími.

K100 var allt annað, ég hef ekki prófað þannig. Það er örugglega ekki neitt líkt.

Einstaka sinn saknaði maður fílingsins að hræra í gírum á 10 sek. fresti ef maður var ekki á akkúrat sama hraða, en ég skipti ekki um gír heilu sýslurnar ef ég fór eitthvert. Síðast frétti ég af hjólinu inni í stofu, nýuppgerðu og komu myndir af því í Hús og Híbýli, held ég, eða mannlífi eða einhverju þannig blaði.

Á sama tíma var ég aðeins á GPZ 550, 6 gíra léttur og fjörmiklu hjóli, en maður gerði ekki annað en skipta um gíra og þh.
Kawi 650 var tískuhjólið þá, mjög gott fyrir lítinn pening.

Sorrý ég missti mig í smá notalgíu, alltaf gaman að rifja upp BMW hjólaárin.

PostPosted: Mon 06. Oct 2003 08:52
by bebecar
Það hlýtur nú að vera löglegt á BMW spjallið að tal aum BMW mótorhjól!

Gaman að heyra að þessu og þetta er akkúrat sú tilfinning sem ég hef fyrir gömlu boxerhjólunum. Það má reyndar geta þess að nýju Boxer hjólin eru komin á skikkanlega prída úti og þau eru nú bara verulega flott útlitslega...

Mér skylst að ekkert mótorhjól endist eins og BMW hjólin, það er víst til R75/6 hjól sem er ekið 1.3 milljón kílómetra.

BMW R75/6

PostPosted: Mon 06. Oct 2003 23:27
by Þórður Helgason
Mitt hjól var komið í 90 þús km. þegar ég seldi, ég frétti af þeim sem gerði það upp, hann leit inní á mótorinn og lokaði bara aftur, snerti ekki á honum.

Ódrepandi.

Ef tryggingarmál væru ekki svona í dag af hjólunum, væri maður með eitt á planinu fyrir sumarið.

PS. Ég seldi það til þess að eignast BMW-inn minn, sem er á þræðinum bílar félagsmanna eða þannig, 2000CA árg 1968. Og ég er að tala um árið 1984...