Page 1 of 2

BMW 520IA Turbó??? Hér heima?

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 10:20
by bebecar
[url]http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=30&BILAR_ID=160757&FRAMLEIDANDI=BMW&GERD=520%20IA%20(TURBO%20190%20HÖ)&ARGERD_FRA=1994&ARGERD_TIL=1996&VERD_FRA=650&VERD_TIL=1250&EXCLUDE_BILAR_ID=160757[/url]

Veit einhver eitthvað um þetta?

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 10:22
by Jss
Það hefur eitthvað verið rætt um hann hér á spjallinu var í sumar ef mig misminnir ekki.

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 10:25
by bebecar
Og er þetta raunverulegt en ekki grín?

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 10:26
by Jss
Virðist vera, meira um þetta hér:

http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... hlight=520

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 10:34
by hlynurst
Ég er búinn að sjá þennan bíl á sölu lengi... sá hann fyrst þegar ég var að lappa á götuspyrnuna á Akureyri og síðan á bílasölu hérna í bænum.

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 12:24
by bjahja
hlynurst wrote:Ég er búinn að sjá þennan bíl á sölu lengi... sá hann fyrst þegar ég var að lappa á götuspyrnuna á Akureyri og síðan á bílasölu hérna í bænum.

Já við sáum þennan bíl. B&L var víst eithvað viðriðið þetta og samþykktu það alveg.

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 13:14
by Jói
Átti ekki Alpina hér á spjallinu svona 520 turbo eða var það kannski 525 turbo? :?:

Annars lítur þessi bíll vel út og ljómandi gott verð. Í hestöflum talið er hann svipaður og venjulegur 525.

Væri gaman að prófa þennan bíl. Einhver hérna sem hefur annars fengið að reynsluaka honum?

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 13:33
by hlynurst
Sveinbjörn átti 525 túrbó eftir því sem ég best veit...

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 14:40
by HelgiPalli
Mig minnir að ég hafi séð hann á sölunni fyrir ofan IH, og þá stóð að hann væri 520ia, 190hp með túrbínu

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 14:47
by Bjarki
Það passar hann var þar.

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 18:48
by ///MR HUNG
Ég man eftir þessum bíl frá því að ég var að vinna í b&l,það var sjóari sem átti hann og þetta var sett í hann nýjann á sínum tíma og þótti að sjálfsögðu alveg geðveikt :roll:

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 19:11
by Alpina
númerið er VM-529 1995 E34 M50B20 Mosselman/turbo-intercooler kit
205 hö / 275 nm fyrsti eigandi Örn Ævarsson....stýrimaður...
Keypti þetta er hann sá bílinn minn ...........og varð veikur!!!!!!!!
Mér fannst muna töluvert á afli þessara bíla þó að munurinn hafi ekki verið
nema M20B25 170hö/222nm vs M50B20 150hö/190nm

og með turbo 240hö/305nm vs 205hö/275nm
En að keyra bílinn hans var margfallt betra..... enda 88 vs 95 :wink:
Sv.H

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 22:16
by bebecar
Þetta er nokkuð forvitnilegt - vita menn hvernig standi þessi bíll er í dag? Þetta er líka SSK er það ekki? Frekar sjaldgæft í túrbóbílum í dag.

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 22:19
by Djofullinn
En hénna eru Mosselman kittin fyrir M50B20 og M50B25 alveg eins? veistu það Sveinbjörn?
Væri nú ekkert leiðinlegt að henda þessu á M50B25..... :twisted:

PostPosted: Tue 23. Sep 2003 22:40
by GHR
Þessi bíll stendur á bílasölunni rétt hjá flugvellinum. Hann er búinn að standa þar óhreyfður síðan ég man eftir mér.... Enda verðið út í bláinn :roll: