Page 1 of 5

E34 M5

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 14:20
by balli750
Veit einhver hvert UO 948 fór???

http://www.bmwkraftur.is/jan2005/img/M5_12.jpg

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 15:57
by @li e30
Ég seldi hann fyrir rúmu ári síðan til gaurs á Akureyri .. frændi jon mar á spjallinu held ég ....
En ég held að hann hafi selt síðan eitthvert út á landsbyggðina .. hef allavega ekki séð hann hérna á höfuðborgarsvæðinu síðan að ég seldi.

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 16:33
by lulex
@li e30 wrote:Ég seldi hann fyrir rúmu ári síðan til gaurs á Akureyri .. frændi jon mar á spjallinu held ég ....
En ég held að hann hafi selt síðan eitthvert út á landsbyggðina .. hef allavega ekki séð hann hérna á höfuðborgarsvæðinu síðan að ég seldi.





það var síðast vitað af honum í borgarnesi....



í frekar sjoppulegu ástandi ...

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 17:03
by ValliFudd
http://www.dog8me.com/bmw/atli/MVI_3869.AVI
Virtist virka helvíti vel fyrir einu og hálfu ári eða svo 8)

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 17:09
by IvanAnders
kom niðrí vinnu um daginn, hann hefur séð betri daga.

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 18:17
by aronjarl
Þetta var yndislegur bíll.!

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 18:30
by jon mar
var mjög smekklegur þegar atli átti hann, hélst í sama ástandi á meðan frændi átti hann.

Rakst síðan á hann í borgarnesi í einhverri suðurferðinni. Bíllinn var með ólíkindum sjoppulegur, drullu skítugur og með brotinn kastara. Heyðir einhverstaðar að kassinn hefði farið í honum líka.

Það er greinilega ekki fyrir hvern sem er að eiga gullmola eins og þennann, og hvað þá að halda þessu í horfinu.

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 18:56
by Alpina
Svo það sé alveg ,,deginum ljósara,, þá átti þessi bíll ,, standard

AFL-LEGA séð ,,,,,, sem var í sérflokki,, af E34 M5 3.6 bílum hérlendis
þá bar hann höfuð og herðar yfir hina bílana,, ótrulega öflugur miðað við sambærilegann bíll

svona eins og svenni tiger vs aron jarl 200m :D :D :D

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 19:01
by sh4rk
Þessi er staðsettur einhver staðar fyrir utan Borgarnes, þekkji gaurinn sem á hann býr á sveitabæ þessvegna er hann oft skítugur hjá honum.
En pústið var að hrinja hjá honum þegar ég sá hann í sumar

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 20:08
by ömmudriver
Það virðist alltaf vera sama sagan með gullmolana, þeir skulu alltaf enda í höndunum á eitthverjum sem kann ekki að fara vel með bíla :? :evil:

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 21:24
by ValliFudd
Ekki vera svona fljótir að dæma drengir, ef gaurinn býr í sveit er nú ekki skrítið að hann hafi verið skítugur, þarf bara eina ferð í bæinn og voila.. skítugur, gæti hafa verið þveginn sama dag þessvegna..
Kastari getur brotnað óháð meðferð eiganda.. Grjót kastast af vegi.. shit happens.. . Kassi í svona bíl endist heldur ekki endalaust..

Mér finnst menn svolítið fljótir að drulla yfir annað fólk án þess að hafa hugmynd um hvað sé í gangi :roll: Má vel vera að hann fari vel með bílinn og sé að eyða peningum í hann.. Hver veit...

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 21:26
by balli750
ekki er það gunnar?

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 21:31
by jon mar
bíllinn var rétt rúmlega skítugur. Hafði greinilega ekki verið þvegið í lengri tíma. Kastarar brotna, ekkert óeðlilegt við það.

Kassinn virtist nú vera orðinn eitthvað lélegur á syncro fyrir annann eða þriðja þegar frændi átti hann. Ég var þó aldrei viss hvort það var kassinn, eða eigandinn sem var óþarflega háður ssk í amerískum blýflekum sem eru smíðaðir með ógleðisauka í huga.


Þetta er hot bíll hvað sem hver segir, hann getur varla verið mjög slæmur eftir tæplega ár. Virkaði djöfulega og var virkilega smekklega búinn. Hefði örugglega keypt hann af frænda ef hann hefði þorað að segja mér að hann væri að selja.

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 22:41
by Raggi M5
Alpina wrote:Svo það sé alveg ,,deginum ljósara,, þá átti þessi bíll ,, standard

AFL-LEGA séð ,,,,,, sem var í sérflokki,, af E34 M5 3.6 bílum hérlendis
þá bar hann höfuð og herðar yfir hina bílana,, ótrulega öflugur miðað við sambærilegann bíll


svona eins og svenni tiger vs aron jarl 200m :D :D :D


Hvernig færðu það út ? Hefuru prófað alla E34 M5 hérlendis ?

PostPosted: Fri 14. Dec 2007 23:02
by Kristjan
Raggi M5 wrote:
Alpina wrote:Svo það sé alveg ,,deginum ljósara,, þá átti þessi bíll ,, standard


AFL-LEGA séð ,,,,,, sem var í sérflokki,, af E34 M5 3.6 bílum hérlendis
þá bar hann höfuð og herðar yfir hina bílana,, ótrulega öflugur miðað við sambærilegann bíll


svona eins og svenni tiger vs aron jarl 200m :D :D :D


Hvernig færðu það út ? Hefuru prófað alla E34 M5 hérlendis ?


Ég prófaði þinn gamla fyrir 3 árum síðan, hann var frekar slappur þá, svo tók ég í MJ877 fyrir 2 árum og hann var svona alltílagi, svo sat ég í þessum sem um ræðir og þó ég hafi ekki verið undir stýri þá fann ég að það var GREINILEGUR munur á þessum og hinum tveimur. Svo ég bakka orð Alpina upp. Þó þetta gæti náttúrulega verið háð einhverjum breytum.