Page 1 of 2

X3 á Íslandi?

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 10:00
by bebecar
Er þetta ekki alveg örugglega tekið á Íslandi?

Image

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 10:08
by benzboy
Jú það held ég að sé alveg pottþétt

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 11:44
by íbbi_
það var verið að tala um sýninguna í "frankfurt" eða hvað sem hún heitir og einmit sagt frá að x3 væri sýndur þar í íslensku umhverfi

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 12:18
by hlynurst
Er þetta ekki í Hvalfirðinum?

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 14:29
by bebecar
Hvalfjörðurinn er einmitt mitt uppáhalds aksturssvæði í nágrenni Reykjavíkur...

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 14:38
by Dr. E31
Ég sá hjá B&L fyrir nokkrum vikum flutningabíl (hliðarhurðin var opin á honum), með svona litlum jeppling inní, alveg örugglega blár.

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 15:59
by Haffi
Iceland all the way baby!

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:10
by Gunni
ójá þetta er íslenskur vegur! ég held samt að þetta sé ekkert rosalega flottur bíll :| bíð eftir að sjá hann in real...

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:12
by Haffi
Er þetta ekki bara svona pínu jepplingur eins og Rav4 'n etc. ?

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:24
by bebecar
Segi það nú varla, hann verður með 2.5 og 3.0 lítra vél... ætli þetta sé ekki Freelander stærðin - er hann ekki aðeins stærri en RAV4?

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:28
by Haffi
hmm Rav4 virkar fínt 2l 150hp :P allavega kemst hann uppí 180 og heldur sér þar :twisted:

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:29
by bjahja
Þetta er alveg klárlega á Íslandi.
En ég las einhverstaðar "loksins komin keppinautur við Rav4"
En ég held eins og bebecar sagði að þetta sé meira freelander týpa, örugglega þónokkuð dýrari en rav4 og hann verður líka örugglega svona 60 sinnum skemmtilegri.

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 16:39
by bebecar
Ég keyrði Rav4 nýjann 2002 heim frá Akureyri í fyrra... Ömurlegur bíll - grútmáttlaus og hávaðasamur.

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 17:01
by Bjarkih
Bílablaðið í mogganum sagði að x3 væri ætlað að keppa við rav4 8) sem er náttúrlega brjálæðislega fyndið því rav4 eru með þeim al-ömurlegustu baukum sem ég hef nokkurntíma prufað að keyra :evil:
En er ekki vegstikurnar örugasta sönnunin fyrir því að um íslenskan veg sé að ræða? Ég man ekki eftir því að hafa séð þær í öðrum löndum.

PostPosted: Thu 11. Sep 2003 20:24
by Schulii
Þetta er tekið á Íslandi.. það var sagt frá því í greininni um bílasýninguna, þegar fjallað var um X3, að auglýsingamyndirnar væru teknar hér :)