Page 1 of 2

Ef menn vilja breið dekk þá....

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 08:49
by bebecar
á að gera þetta svona!

Ansi svalur E21 kappakstursbíll frá 1976... Ég gæti nú alveg hugsað mér minn á sterum í þessari útgáfu!

Image

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 11:55
by Logi
Setja bara E30 M3 evo2 vél í hann og þá er hann fullkominn :D

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 13:55
by gstuning
Mér finnst bretta kantar eða útbreikkanir ljótar

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 13:56
by GHR
gstuning wrote:Mér finnst bretta kantar eða útbreikkanir ljótar


100% sammála!!! Þetta á heima á jeppum en ekki fólksbílum :roll:

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 14:09
by Mal3
Image

Það er ekki sama Jón eða séra Jón, en ég man ekki eftir BMW með brettakannta frá verksmiðju sem var ekki flottur :)

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 14:26
by bebecar
Sama segi ég - finnst ykkur virkilega flottara að láta dekkin standa út undan brettunum?

Bretta útvíkkanir eru bara klassískar allstaðar þar sem verið er að breyta bílum til kappaksturs t.d. - hvað væri E30 M3 án útvíkkana???

Og að segja að þetta eigi bara heim á jeppum á nú bara við um Ísland síðustu 15 árin eða svo....

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 14:37
by Djofullinn
Mér finnst M3 útvíkkanir og þannig wide body kitt flott en er ekki eins hrifinn af svona "brettaköntum"

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 16:58
by íbbi_
mér finnst nú oftast frekar fallegt ef dekkið stendur út fyrir kantin, brettaútvíkkanir í bílum sem eki komu soleiðis orginal finnst mér viðbjóður.. jeppar eru fínir með kanta

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:08
by iar
Sammála þér bebecar, þetta er hálf hlægilegt svona þegar dekkin skaga út undan bílnum, og tala nú ekki um þegar felgurnar skaga líka út undan dekkjunum. Það var t.d. það helsta sem gerði svarta E30 bílinn sem þú póstaðir fyrir nokkru alveg hræðilegan, annars þrælfínn, jafnvel með hænsnanetinu. ;-) Jæja.. augnabrúnirnar voru kannski ekki heldur alveg að meika það... og límmiðinn í framrúðunni líka... jæja.. kannski var kagginn ekkert mikið að heilla mig.

Svona til að enda viðsnúninginn alveg þá er best að enda þetta Statler & Waldorf style: Boo, that was horrendeous, boo.. :-)

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:29
by benzboy
Mér finnst þetta bara alltof mikið - í fínu lagi svona aðeins og sem wide body kit en svona jeppakantar eins og á þessum er bara of mikið fyrir mig

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:33
by Haffi
BEBE.... alpina felgur á þinn ,,,,, PERFECT!

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:43
by Djofullinn
Mér finnst t.d hæfilega litlar M3 útvíkkanir á E21 geðveikt flott!
Image
Image

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:50
by Haffi
Rífa þessar felgur undan! SVEI

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:51
by GHR
Haffi wrote:Rífa þessar felgur undan! SVEI


ehhh NEI!!! Geðveikar felgur á þessum bíl :clap:

PostPosted: Mon 25. Aug 2003 17:53
by Haffi
Þú ert fínn gaur..... Let's keep it that way OK! :twisted: