Page 1 of 2

Þvílík nauðgun á annars góðum bíl....

PostPosted: Sat 23. Aug 2003 21:42
by bebecar
Mér finnst alveg VIÐBJÓÐSLEGT að sjá þennan bíl - ég get varla hugsað mér verri meðferð á svona fallegum bíl nema þá að hrísa hann Civic style.

Alpina B6 :cry:

http://www.mobile.de/SIDcfAeuQQ0v4voOZun9iNHdw-t-vaNexlCsAsK%F3P%F3R~BmSB10LsearchPublicJ1061678263A1LsearchPublicCCarY-t-vctpLtt~BmPA1A1B20C226Y-t-vMk_xsO~BSRA6D1100A0A0/cgi-bin/da.pl?top=10&bereich=pkw&id=11111111124410872&

PostPosted: Sat 23. Aug 2003 21:53
by GHR
Þessi bíll er geðveikur :wink:
Er ekki að sjá neitt sem ég myndi vilja sleppa við að gera við hann

PostPosted: Sat 23. Aug 2003 21:58
by bebecar
Þetta er einsog trukkur með tvöföld dekk! Það væri hægt að láta hamstra hlaupa á hjólunum að utanverðu sér til gamans!

Dekkin skaga svo langt útundan að þau minnka hámarkshraða sennilega um 50 kmh!

PostPosted: Sat 23. Aug 2003 21:59
by Mal3
Ætli markaðsverð á "chicken wire" sé ekki að snarhækka þar sem þetta virðist komið í svuntuna á öðrum hvorum bíl? :puke:

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 01:55
by Djofullinn
Nammi namm! Geðveikur bíll! Svona eiga túttur og felgur að vera!!

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 02:13
by Benzari
það er rigning úti

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 06:27
by bjahja
Ég verð að vera sammála bebecar, dekkin passa ekki á felgurnar !!!
Síðan er þessi stuðari ekki að passa á E30, Splitterarnir ekki heldur, merkið á rúðunni og síðast en ekki síst hæsnanetin.
Me not like :roll:

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 11:31
by benzboy
OMG

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 13:08
by Djofullinn
bjahja wrote:Ég verð að vera sammála bebecar, dekkin passa ekki á felgurnar !!!
Síðan er þessi stuðari ekki að passa á E30, Splitterarnir ekki heldur, merkið á rúðunni og síðast en ekki síst hæsnanetin.
Me not like :roll:

Afhverju segir þú að dekkin passi ekki á felgurnar? Vegna þess að flestir íslendingar eru með alltof breið dekk á sínum felgum og berjast við að setja eins breið dekk á felgurnar?
Þar sem flestir í þýskalandi, ítalíu og fl. löndum setja mun mjórri dekk á felgur heldur en við finnst mér nú eðlilegra að segja að dekkin sem VIÐ séum að setja á felgur séu ekki að passa ;)
T.d er kjörstærðin af dekkjum á 9x16 felgur í þýskalandi 215/40, íslendingar mundu aftur á móti setja 245 eða breiðari dekk.


Bara mín 2 cent

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 14:01
by Djofullinn
Þetta er af sjálfsögðu ekki neitt diss hjá mér, þetta er bara smá hugleiðing :) Alls ekki að setja útá ykkar álit á bílnum

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 14:19
by Mal3
215 hljómar í grennri kanntinum fyrir mína parta á 9x16, en 245 full breitt sömuleiðis. En ég er enginn sérfræðingur í svona málum :roll:

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 14:37
by bebecar
Mér finnst bara það ljótasta af öllu ef að felgur (og þá dekk) standa útundan brettunum! Mér finnst það bara fáránlegt - ef menn fara í slíkar tilfæringar er sjálfsagt að setja bretta útvíkkanir eins og gert var með E30 M3.

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 14:44
by Mal3
Þegar ég var í suðurhluta USA fyrir 9 árum var þetta alveg málið. Menn keyrandi um á einhverjum japönskum bílum, lækkuðum á útstandandi überbreiðum 13" krómfelgum!

Ég og félagi minn ýttum þessu pakki bara út af veginum á Lincoln Town Car sem við notuðum til að krúsa þarna :D

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 19:40
by Gunni
bebecar wrote:Mér finnst bara það ljótasta af öllu ef að felgur (og þá dekk) standa útundan brettunum! Mér finnst það bara fáránlegt - ef menn fara í slíkar tilfæringar er sjálfsagt að setja bretta útvíkkanir eins og gert var með E30 M3.


maður á líka ekki að fá skoðun ef að dekkin standa útfyrir brettin, því þá þarf að setja brettakanta! Og þetta er ekki grín!

PostPosted: Sun 24. Aug 2003 19:48
by bebecar
Já, ég hélt það væri einmitt þannig - eru þeir ekki mjög stífir á því að dekkin standi ekki útfyrir? Maður hefur einmitt oft séð Benz eða BMW með endurskoðun og einmitt útstæð dekk!