Koma tímar koma ráð!

Posted:
Sat 23. Aug 2003 21:27
by bebecar
Þessi finnst mér ótrúlega flottur og mikið rosalega myndi ég vilja M5 með þessum felgum - bara frábærar!
Algörlega hreinn þessi bíll, rétt kílómetratala (segir hann) og ótjónaður - ný dyno mældur, þjöppumældur og hvaðeina....
http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2429226029&category=38695


Posted:
Sat 23. Aug 2003 21:33
by SkuliSteinn

Posted:
Sat 23. Aug 2003 21:37
by bebecar
Ég átti nú einmitt von á því að flestum þætti þetta ljótt
En þetta eru bara snilldar felgur og súper kæling á þeim og einmitt þessvegna eru þær ljótar - ég ber bara ótakmarkaða virðingu fyrir ienhvejru sem er hannað með tilliti af fúnksjón fyrst og fremst.

Posted:
Sat 23. Aug 2003 21:52
by Kull
Ég myndi nú frekar setja barka frá framstuðaranum að bremsunum til að bæta kælingu en svona felgur....

Posted:
Sat 23. Aug 2003 22:00
by bebecar
Þetta er bara frábær hönnun og ég hef séð svona felgur up close og þær eru mjög flottar - líta ekki út eins og koppar þegar maður sér þær!

Posted:
Sat 23. Aug 2003 22:01
by Mal3
Hmmmm, kannski ekki fyrsta val, en svalar. Gera bílinn bara að meiri sleeper.
Ertu annars bara búinn að sitja á
www.mobile.de síðan þú fékkst ekki Lottóvinning?


Posted:
Sat 23. Aug 2003 22:06
by bebecar
Já...
Ég skil ekkert í þessu - ég fylgist vikulega með þessu og yfirleitt eru sömu bílarnir. Nú ber hinsvegar svo við að það er hellingur af Biturbo bílum og B7 Turbo og hvaðeina - ótrúlegt úrval!
Ég er ílla haldinn núna!

Posted:
Sat 23. Aug 2003 22:07
by Mal3
Maður hefði kannski átt að versla miða. Vextirnir yfir veturinn hefðu ábyggilega dugað fyrir 944


Posted:
Sun 24. Aug 2003 02:24
by Benzari
bebecar wrote:Já...
Ég skil ekkert í þessu - ég fylgist vikulega með þessu og yfirleitt eru sömu bílarnir. Nú ber hinsvegar svo við að það er hellingur af Biturbo bílum og B7 Turbo og hvaðeina - ótrúlegt úrval!
Ég er ílla haldinn núna!
sorry, ætlaði ekki að demba þér inní mobile og ebay surfið enn eina helgina
PS. Þetta lítur út eins og dekkin með hvítu röndunum í gamla daga

Posted:
Sun 24. Aug 2003 11:35
by benzboy
Fallegur bíll en felgurnar eru ekki að gera það fyrir mig

Posted:
Sun 24. Aug 2003 20:30
by Alpina
Sammála Ingvari
ÞETTA eru felgurnar,,,,,,,,,,,,,,,,,,Aldeilis mergjaðar!!!!!!!!!!
Sv.H

Posted:
Sun 24. Aug 2003 20:39
by Stefan325i
bíllinn hans kull var á svona felgum þegar hann kom til landsins
kull fékstu þær með bílnum þegar þú keyptir hann ????

Posted:
Sun 24. Aug 2003 21:47
by bebecar
Hehe Sveinbjörn! Minn maður!
Ég hef grun um að felgurnar undan bílnum hans Kull séu núna undir gamalli sjöu 735 ef ég man rétt. Alveg hin mesta synd að fá þessar felgur ekki með M5 bílnum - ég held það sé hægt að skipta út túrbínu lúkkinu fyrir "throwing star" - þetta er plast utan á felgunum sjálfum (felgurnar eru með svartri miðju).
Þetta eru sömu felgurnar með "throwing star" miðjum...
Svona eru þær svo án hlífanna - og eins og þið sjáið væri hægt að ná þremur mismunandi útgáfum með einu setti af felgum - bara snilld.
Ég var einmitt dálítið veikur fyrir því að hafa þær svona svartar á mínum gamla þar sem hann er náttúrulega krómlaus - hann yrði varla mikið vígalegri allavega!

Posted:
Sun 24. Aug 2003 23:56
by íbbi_
ég fíla alveg þessar felgur, gera bílin einmitt af miklum sleeper, fínar á veturnar

Posted:
Mon 25. Aug 2003 00:33
by Mal3
Úff hvað þær eru svalar svona svartar með póleraðri rim. Alger snilld.
Þetta væri kick ass á t.d. eldri fimmu...