Page 1 of 2

AC Schnitzer V8 Topster

PostPosted: Tue 22. May 2007 22:08
by slapi
Ég prófaði að leita innan spjallsins og fann engan almennilegan þráð um þennan bíl sem er að komast á fjórða aldursárið en V8 Topster er concept bíll frá AC Schnitzer frá árinu 2003 og var hannaður og smíðaður á mettíma.

Í grunninn er þetta 2003 módel af BMW Z4 3.0l og er þetta orðið 8 cyl græja nánar tiltekið mótor að nafni S62 (4941cc) mótor úr smiðju BMW Motorsport deildarinnar sem er að skila upprunalega 294kW(400ps).
AC þurfti auðvitað að auka örlítið við orkutöluna sem fer úr 294kW í 331kW(450ps) en þessari aflaukningu ná þeir með að auka þjöppuna úr 11,0:1 í 11,5:1 og smá endurbætur á forriti vélartölvunar.
Þó kW talan hoppi ágætlega upp við þessar endurbætur fer togið aðeins upp um 20 Nm sem er þá komin í 520 Nm sem er kannski ágætt í "Z4" enda er V8 Topster ekki nema 4,5sec í 100km/klst.
Aftan á þetta kemur sami gírkassi og þekkist í E39 M5 s.s. Getrag týpa D, 6gírar áfram og 1 afturábak með sjötta gírs hlutfall 0,83:1 sem að tryggir V8 Topster endahraða upp á 305km/klst(Takmarkað rafrænt) á 3,62:1 hlutfalli sem er með 0-100% sjáflbreytilegri læsingu.

Image

Eins og góðum "tjúnara" sæmir þá er það ekki bara einn þáttur af bílnum tekinn fyrir því að alvöru race bíll þarf endurbætur á öllum sviðum , þar má nefna að bremsukerfi er vel endurbætt þar sem að diskastærð hefur verið aukin , Ø 365mm framan og Ø 328mm að aftan, átta stimpla kappaksturs dælur að framan tryggir það að Topster getur ráðið við neikvæða hröðun vel yfir 1 g á brautinni.
En ekki er hægt að þakka eingöngu bremsum þessum kröftum því að AC Shnitzer tók fjöðrunarkerfi Z4 og skipti því algjörlega út , Demparar , gormar , spyrnur , ballansstangir og meira að segja hjólalegur hafa verið endurbætt sem að tryggir hámarksvegrip við ýmsar aðstæður og allt að 35 mm lækkun frá uppunalegri hæð Z4 og sést einnig vel á fyrstu mynd demparaturna stífa sem er alveg gífurlega snyrtileg en auðvitað með fullt notkunargildi til að nánast eyða togkröftum innan boddýsins að framan.

Image

Bíllinn er alveg óskaplega einstakur í útliti , ekki bara sprautunin því snillingarnir hafa sett svona einstaka detail hér og þar til að gera bílinn svolítið að sínum með gífurlegt prinsipp auðvitað.
Innrétting hefur verið tekin í gegn með held að mér sé óhætt að segja einstökum hætti því litirnir flæða einnig inn í bílnum (orange carbon verður inn eftir nokkur ár).
20" AC felgurnar undir þessu harmonera bílnum rosalega vel , aðeins tvennt eftir að segja 255/30R20 að framan og 305/25R20 að aftan.8)

En ég ætla að leyfa myndunum að tala af þessum geggjaða vagni.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image



Fleiri myndir og video á http://www.ac-schnitzer.de/en/bmw-cars/garage/concept-cars/2003-v8-topster/multimedia/

PostPosted: Tue 22. May 2007 22:14
by BjarkiHS
Mér finnst toppurinn á þessum bíl algjör horbjóður :puke: Carbonið í innréttingu er algerlega málið 8)

PostPosted: Tue 22. May 2007 22:26
by Einarsss
arrgghh its but ugly

PostPosted: Tue 22. May 2007 22:27
by Stebbtronic
Þetta er bara svo ljótt kvikindi!!! [-(

PostPosted: Tue 22. May 2007 22:57
by Gunni
Mér finnst þessi bíll geggjaður.
Þessi orange litur er eitthvað svo svalur 8)

PostPosted: Tue 22. May 2007 23:26
by Aron Andrew
Hrikalega flottur að mínu mati 8)

Ekki skemmir aflið fyrir!

PostPosted: Tue 22. May 2007 23:28
by arnibjorn
Aron Andrew wrote:Ég er auli!
En bíllinn er flottur! 8)

PostPosted: Tue 22. May 2007 23:53
by Saxi
Ég er svo skemmdur :lol:

Image[url]

Image[/url]

kveðja

Re: AC Schnitzer V8 Topster

PostPosted: Tue 22. May 2007 23:57
by iar
Topster er svo flottur! Hógværð hent út um gluggann og búin til übermegagræja! Flottast í heimi! :-D

PostPosted: Wed 23. May 2007 00:58
by steini
geggjaður ef hann væri bara svartur

PostPosted: Wed 23. May 2007 00:59
by ///MR HUNG
Cool græja 8)

PostPosted: Wed 23. May 2007 08:14
by Thrullerinn
Flott vídjó:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ht=topster

Gamall þráður, myndirnar eru reyndar dottnar út:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ht=topster

Annar myndband, dauður linkur:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ht=topster

Það er allt flott við þennan bíl 8)

PostPosted: Wed 23. May 2007 10:11
by bimmer
Agalega ósmekklegt litacombo fyrir þennan bíl IMHO.

PostPosted: Wed 23. May 2007 10:17
by Knud
Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri til. Væri mjög svo til í að eiga svona bíl, kannski ekki beint með þessu litacomboi, en það myndi svo sem gleymast fljótt þegar haldið væri af stað.

Flott grein hjá þér :wink:

PostPosted: Wed 23. May 2007 22:17
by Thrullerinn
Knud wrote:Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri til. Væri mjög svo til í að eiga svona bíl, kannski ekki beint með þessu litacomboi, en það myndi svo sem gleymast fljótt þegar haldið væri af stað.

Flott grein hjá þér :wink:


second that..